Hálmholtskot eða Hjálmholts-Vesturkot, sem í kirkjubókum var oftast nefnt Vesturkot og var allt sama jörðin, stóð 350 m norðvestur af bænum í Hjálmholti og var hjáleiga frá höfuðbólinu eins og nafnið segir til um, „bygð skamt frá heimatúninu fyrir manna minni,“ eins og segir í Jarðabók Árna Magnússonar frá 1709. Kvikfé bóndans það ár var þrjár kýr, tvær kvígur að fyrsta kálfi, tveir kálfar, 25 ær, 13 sauðir, 25 lömb og þrír hestar. „Kostir allir og ókostir sem á heimajörðunni.“
Sem vænta mátti voru eigendur Hjálmholts jafnan eigendur Vesturkots. Þó brá útaf þessu 1861 þegar Guðný Þormóðsdóttir frá Hjálmholti erfði Vesturkot eftir föður sinn, Þormóð Bergsson. Guðný bjó í Vesturkoti í 30 ár, ásamt manni sínum Hreini Þorkelssyni, en hætti búskap 1891 eftir lát hans tveimur árum fyrr og seldi þá jörðina næsta ábúanda, Guðmundi Jónssyni, sem bjó þar til 1914. Eftir lát hans ári síðar keypti Kolbeinn Sigurðsson í Hjálmholti Vesturkot og lagði það til Hjálmholts.
Fyrst er minnst á Vesturkot í Manntali 1703 og er þá aðeins nefnt; „hjáleiga þar“ og Hjálmholtshjáleiga í Jarðabókinni. Þetta hefur stundum valdið misskilningi og menn hafa jafnvel ruglast á Suður- og Vesturkoti í heimildum en sem kunnugt er gengu hjáleigur oft undir mismunandi nöfnum, jafnvel samtímis.
Í Jarðamatinu 1849 var Vesturkoti lýst svo: „Túnið er mestpart þýft og grýtt, meðallagi stórt, fóðrar 2 kýr. Engjar litlar, þýfðar og greiðfærar, heyfall gott. Hagbeit er þó lakari en á heimajörðinni.“ Þrátt fyrir þessa lýsingu var Vesturkot talið á við meðaljörð enda bjuggu margir bændur vel í kotinu. Í Jarðabók 1861 var Vesturkot metið á 7,54 jarðarhundruð sem var hæsta mat sem hjáleigur voru metnar á. Til er lýsing frá 1885 af landamerkjum milli Vesturkots og Hjálmholts og má af henni ráða að Vesturkoti hafi fylgt drjúg sneið af öllum vesturhluta núverandi Hjálmholtslands. Örnefni Vesturkots eru talin með Hjálmholti. Búsetu í Vesturkoti lauk 1916 og þá var það lagt undir Hjálmholt.
Ábúendur Vesturkots 1861-1891
Hreinn Þorkelsson og Guðný Þormóðsdóttir bjuggu í Vesturkoti til 1889 er Hreinn lést, en Guðný bjó áfram til 1891. Hreinn var fæddur 22. maí 1832 á Ljótarstöðum í Austur-Landeyjum og dó 18. nóvember 1889 í Vesturkoti. Foreldrar hans voru Þorkell Jónsson bóndi, fæddur í mars 1799 á Ljótarstöðum og dó þar 15. júlí 1879, og Guðrún Guðmundsdóttir kona hans, fædd 23. desember 1803 á Kirkjulandi í Austur-Landeyjum, dó 4. júní 1873 á Ljótarstöðum. Þau giftu sig 30. júní 1821.
Hreinn og Guðný giftust 29. júní 1859. Guðný var fædd fædd 7. mars 1832 í Oddgeirshólum, dó 23. ágúst 1906 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Þormóður Bergsson bóndi og Margrét Sigurðardóttir kona hans.
Börn Hreins og Guðnýjar
- Þorkell Kristinn Hreinsson, fæddur 8. september 1861 í Vesturkoti, dó af slysförum er hann féll af smíðapalli 14. júlí 1913 við smíði stórbyggingar Sláturfélags Suðurlands í Reykjavík. Hann var trésmiður í Reykjavík, en fyrstu búskaparárin á Eyrarbakka, þar sem hann m.a reisti fjölskyldunni húsið Ingólf, þar í þorpinu. Þorkell kvæntist 19. júní 1890 Elínu Magnúsdóttur, fæddri 17. maí 1860 í Snotru í Austur-Landeyjum, en var alin upp á Ljótarstöðum. Hún dó 9. mars 1925 í Reykjavík. Elín var dóttir Magnúsar Björnssonar frá Bergþórshvoli, bónda á Ljótarstöðum og Margrétar Þorkelsdóttur frá Ljótarstöðum. Geta má þess að Margrét, móðir Elínar, var systir Hreins, föður Þorkels Kristins, og hjónin því systkinabörn. Sagt hefur verið svo frá að Þorkell hafi verið sendur á skíðum að vetrarlagi úr Hraungerðishreppnum austur í Ljótarstaði til Margrétar föðursystur sinnar. Þar hafi hann fest augu á heimasætunni á bænum, Elínu, dóttur Margrétar.
- Jón Hreinsson, fæddur 28. janúar 1864 í Vesturkoti, dó þar 4. febrúar sama ár.
- Margrét Hreinsdóttir, fædd 20. desember 1866 í Vesturkoti, dó þar 16. janúar 1869.
- Guðmundur Hreinsson, fæddur 7. febrúar 1870 í Vesturkoti. Hann drukknaði í Þorlákshafnarlendingu 24. febrúar 1887, ásamt sex af sjö úr skipshöfn Bjarna Pálssonar, organista í Götu á Stokkseyri.
- Andvana piltur, fæddur 12. mars 1872 í Vesturkoti.
- Guðrún Hreinsdóttir, fædd 15. apríl 1874 í Vesturkoti, dó 14. apríl 1951 í Reykjavík. Hún var skráð vinnukona þar árið 1910. Barnsfaðir 1: Guðjón Eiríksson, þá vinnumaður á Stóra-Ármóti, fæddur 24. júní 1868 í Haugakoti, dó 1. apríl 1907. Hann varð bráðkvaddur á leið milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, sonur Eiríks Eiríkssonar bónda og k.h. Þóru Jónsdóttur. Barnsfaðir 2: Guðlaugur Jónsson, fæddur 29. nóvember 1872 á Eyrarbakka, dó í nóvember 1918 í Reykjavík. Hann var verkamaður þar, sonur Jóns Jónssonar bónda í Einkofa og víðar á Eyrarbakka og k.h. Guðbjargar Eyjólfsdóttur. Barnsfaðir 3: Björn Þórðarson kaupmaður í Reykjavík, f. 15. september 1865 í Kirkjuvogi í Höfnum, dó 9. ágúst 1953 í Reykjavík, sonur Þórðar Björnssonar hreppstjóra í Kirkjuvogi og k.h. Elísabetar Ólafsdóttur frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð. Guðrún giftist 24. júlí 1921 Oddi Guðbergi Jónssyni, vélstjóra. Hann var fæddur 3. október 1894 í Lambhúsum á Kjalarnesi, dó 13. febrúar 1952, þá á siglingu með e.s. Selfossi, sonur Jóns Sæmundssonar bónda á Sjávarhólum, Esjubergi og Lambhúsum og þriðju konu hans, Guðrúnar Oddsdóttur frá Króki á Kjalarnesi.
Hreinn Þorkelsson var fæddur á Ljótarstöðum í Austur-Landeyjum og ólst þar upp til fullorðinsára hjá foreldrum sínum í stórum systkinahópi. Þorkell faðir hans var góður smiður og mun Hreinn hafa numið smíðar af honum. Hann kvæntist Guðnýju Þormóðsdóttur, heimasætu í Hjálmholti, 1859 og þau fóru að búa þar í þríbýli með tveimur bræðrum hennar það sama vor.
Hjálmholt var efnaheimili og þegar stórbóndinn Þormóður Bergsson, faðir Guðnýjar, lést 1860 kom Vesturkot í hennar arfshlut. Þá fluttust þau Hreinn og Guðný að Vesturkoti og hófu búskap þar 1861. Hreinn skipaði sér strax í hóp betri bænda í sveitinni, var ellefti í útsvarsröðinni fyrsta árið í Vesturkoti og jafnan eftir það. Hann hafði gott bú og stundaði einnig rokkasmíði. Hreinn naut álits sveitunga sinna, var kjörinn í hreppsnefnd 1876 og sat þar til dánardags 1889. Þau Guðný eignuðust sex börn en nutu ekki mikils barnaláns því aðeins tvö þeirra komust nokkuð til aldurs. Þau voru löngum með tvo vinnumenn og vinnukonu enda var Vesturkot ekkert kot í þeirra höndum þótt nafnið segði svo. Hreinn lést á heimili sínu 1889 aðeins 57 ára og lét eftir sig eignir að verðgildi 3.934 krónur sem voru ígildi 40 kýrverða.
Guðný fluttist niður að Eyrarbakka ásamt Þorkeli syni sínum og fjölskyldu hans og þau settust fyrst að í Garðbæ, þar til Þorkell hafði reist fjölskyldunni íbúðarhús, sem gengur undir nafninu Ingólfur. Þaðan fóru þau til Reykjavíkur 1901 og Þorkell byggði þar annað hús, Lindargötu 34/56. Guðný lést í Reykjavík fáum árum síðar.
Heimildir:
Texti þessi er að mestu tekinn úr Flóamannabók I og II, Hraungerðishreppur, fyrra og síðara bindi, eftir Jón M. Ívarsson, sem út kom 2020.
Einnig er fléttað inn í texta Jóns upplýsingum úr handskrifuðu blaðsnifsi frá Bjarna Bjarnasyni og fleiri varðveittum skjölum úr dánarbúi hans og foreldra minna, Þorkels Bjarnasonar og Ragnheiðar Esterar Guðmundsdóttur.