Ættfræði: Frá Jóni Arasyni, Hólabiskupi

Alþekkt er að Jón Arason, biskup á Hólum í Hjatladal og síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn í Skálholti 7. nóvember árið 1550, ásamt sonum sínum, Birni og Ara. 

Þá er það einnig þekkt að þeir feðgar voru fluttir norður að Hólum eftir aftökuna. Á leiðinni var komið við á Laugarvatni, kistur feðganna lagðar á steina, Líkasteina, við heita laug á vatnsbakkanum og líkin þvegin þar í lauginni, sem síðan heitir Vígðalaug. Er það haft fyrir satt hér að þá hafi ætt vor fyrst komið að Laugarvatni, alla vega svo í frásögur væri færandi.

Jón var sonur Ara Sigurðssonar, bónda á Laugalandi í Eyjafirði, sonar Sigurðar Jónssonar, sem var príor í Möðruvallaklaustri 1439-1492, og konu Ara, Elínar bláhosu Magnúsdóttur. Ari dó þegar Jón var ungur og ólst hann upp með móður sinni á Grýtu, kotbýli skammt frá Munkaþverárklaustri, en þar var ábóti Einar Ísleifsson frændi Elínar og hafa mæðginin líklega verið þar í skjóli hans. Löngu seinna orti Jón gamansama vísu þar sem hann lét sem Grýta hefði verið mikil kostajörð samanborið við helstu höfuðból Eyjafjarðar:


Ýtar buðu Grund við Grýtu,

Gnúpufell og Möðruvelli

en ábótinn vill ekki láta

aðalból, nema fylgi Hólar.

 

Oft mun þó hafa verið þröngt í búi hjá mæðginunum á Grýtu en Einar ábóti liðsinnti frænda sínum, lét hann vinna fyrir mat sínum í klaustrinu og veitti honum menntun. Ekki er þó víst hve mikil sú menntun var og að minnsta kosti þótti latínukunnátta hans ekki mikil en sagt að þeim mun meiri þekkingu hafi hann haft á norrænum fræðum. Frændi hans var líka með lærðustu mönnum og rak skóla í klaustrinu. Líklega hefur Jóni líkað vistin þar vel því að hann setti börn sín þar til mennta síðar (https://is.wikipedia.org/wiki/Jón_Arason)

 

Jón Arason, Hólabiskup

1. Sr. Björn Jónsson á Melstað

2. Magnús Björnsson á Reykjum

3. Eiríkur Magnússon í Djúpadal, Skagafirði

4. Magnús Eiríksson á Reykjum

5. Jón Magnússon á Reykjarhóli í Fljótum

6. Hannes Jónsson í Marteinstungu í Holtum

7. Sr. Jón Hannesson á Mosfelli í Mosfellsdal

8. Sr. Auðunn Jónsson á Stóruvöllum í Landsveit.

9. Vigdís Auðunsdóttir, húsfreyja á Grund í Skorradal

10.Bergsteinn Vigfússon frá Fellsmúla, Landsveit, hreppstjóri á Torfastöðum í Fljótshlíð

11. Vigdís Bergsteinsdóttir, húsfreyja í Búðarhólshjáleigu, Austur-Landeyjum

12. Bjarni Bjarnason, skólastjóri og alþingismaður, Laugarvatni

13. Þorkell Bjarnason, hrossaræktarráðunautur, Laugarvatni

14. Gylfi Þorkelsson, kennari, Laugarvatni

15. Ragnar Gylfason, verkfræðingur, Garðabæ         Ari Gylfason, pípari, Laugarvatni

16. a) Vigdís Ragnarsdóttir, f. 2016                            a) Sif Aradóttir, f. 2021

      b) Hilmir Ragnarsson, f. 2019                               b) Logi Arason, f. 2023

      c) Óskírð Ragnarsdóttir, f. 2026                            c) Ófæddur Arason, f. 2027

 

 

Skildu eftir svar