Um Gust
Stend ég hérna stoltur klár
og stari á syfjað hyski,
en bráðum kemur Bjarni knár
með brauð á silfurdiski.
Ónafngreindur nemandi Bj.Bj.
o – o – o – o
Dagar, stundir, öld og ár
okkar kóngur mesti
ertu Gustur, kosta klár
kennarinn minn besti.
Ónafngreindur góðbóndi í orðastað eigandans
o – o – o – o
Áfram þusti fáka fans.
Foldin gnast við hófa dans.
Fremstur Gustur fór með glans.
Flestum gazt að kostum hans.
Fr.G.
Um Ósa
Þrumuljósa ferð með fer
fákurinn Ósi nýtur
í veðreið hrós af höldum ber
hæst má verðlaun kjósa sér
Jón í Skeiðháholti
o – o – o – o
Yfir leiti braut og brýr
burðar neyti hraður,
sköflum beitir, skjálftinn flýr,
skeiðið þreytir Bógatýr
Óvíst um höf.
Um Skjóna
Yfir sléttur, engjar, tún
urðir, brekkur, heiðar,
tekur rétt öll tilþrif hún
töltir, stekkur, skeiðar.
Jón Einarsson, Miðhúsum, Mýrars.
o – o – o – o
Lyftist hátt af innri yl
ólmur Bjarna Skjóni.
Gæðingurinn grípur til
svo gneistar loga á fróni.
Hlusta ég á þitt hófamál
hesturinn besti á fróni.
Gangur þinn og göfug sál
gáfu mér lífdrykk, Skjóni.
Þórður Kristleifsson
o – o – o – o
Skjóni Bjarna á Laugarvatni
Tifar, skundar, tilþrif snör,
tíða undra-sporið, –
brunar grundu, flýtir för
frjáls í lund sem vorið.
Yfir hæðir holt og mó
hljóp án mæði´af snilli,
undra-gæðin, aflið nóg
eg í ræðu hylli.
Höfuð reisti´ í tauma tók,
tindrar neisti´ í spori,
fram hann geystist, flugið jók,
ferð með hreysti´og þori.
Fagri góði fákur minn,
fell og slóðir duna,
lifnar blóð við leikinn þinn,
lyfting, móð og funa.
Taktfast ómar töltið hátt,
títt og hljómar lengi.
Hesta ljóminn dansar dátt,
dynur blóma-engi.
Laugarvatni, 7. sept. 1961.
Þórður Kristleifsson.
Þessa vísu orti Þórður líka eftir að Védís hafði lánað honum Létti nokkurn:
Fákinn góða þakka þér,
það var dagsins gaman
að finna hve hann frækinn er
og fætur dansa saman.
o – o – o – o
Hingað mjó var gatan gjörð
ég geng hana aldrei kvíðandi.
Hollt er að kynnast himi og jörð
og horfa á Bjarna ríðandi.
Óvíst um höf.
o – o – o – o
Allar stundir finnur, frár
fór sem ör á hjarni.
Nú er Fífill keppinn, knár
kominn til þín, Bjarni.
Óvíst um höf.
o – o – o – o
Vekur styrr og veitir frið
vonir rætast mínar
gegnum taum að tala við
tilfinningar þínar.
Guðmundur á Skálpastöðum
Eintóm snilld á alla lund,
enn hvað það er gaman.
Ó, að við mættum yndisstund
eiga margar saman.
Guðmundur á Skálpastöðum
Vel jeg finn, mjer væri það
veiga mestur auður
ef þú gætir gert mig að
góðum manni, Rauður.
Guðmundur á Skálpastöðum
Enginn mundi orka því
afrendur þó væri
að ganga til og grípa í
glatað tækifæri.
Óvíst um höf.
Grái Faxi gæfur er
góðlátur og hollur,
um mig ótti falinn fer
ferlegur er sá hrollur.
(BB?)
o – o – o – o
Þá Stígandi, sá stælti jór,
stikar beint að Garði
ráðríkur og risi stór
réðst á mig og barði.
(BB?)
o – o – o – o
Hjá Lappa og Gráfeld leið mér best
og líka af því stafar,
að ég þarf bæði hund og hest
hinum megin grafar.
Kristinn Árnason, Finnsst.
Kappreiðar. Sléttubönd.
Aldir fákar leiftur leik
lífga vanginn hýra.
Valdir strákar, kona keik,
kviku fangi stýra.
Blikar auga, funa flóð
fáksins snilli rómar.
Kvika taugar, brimar blóð.
Bærast hylli ómar.
Stilltir knapar ramma reið
reistum gandi beita.
Trylltir gapar skjótast skeið
skriðhratt, sandi þeyta.
Svellur móður, blakkar braut
bruna, spretti ljúka.
Vellur blóðið, hrósið hlaut
hryssan Gletta mjúka.
Kenna allir gamla Gný, –
goðanna stáli búinn, –
renna vallar ólgu í
ofsa-báli knúinn.
Fýkur skjótur Gulur, greitt
grípur roku stranga.
rýkur fljótur, þrekki þeytt,
þyrlast stroku langa.
Laugarvatni, 14. júní 1962.
Þórður Kristleifsson
Hófa-blökin, gripin greið
gleði fagnað eykur.
Lófa-tökin, samspils-seið
sveinninn magnar keikur.
Stækkar heiminn gæðings glóð
glæðir hreiminn funa.
Hækkar geiminn fjörsins flóð
fangar dreyminn muna.
Laugarvatni, vorið 1952.
Þórður Kristleifsson
o – o – o – o
Skuggaþáttur (brot)
- Segðu mér Skuggi
sögu þína.
Hví hljópstu á brott
úr heimalandi?
Hefur ei til vegs
hafið þið Bjarni,
kennt þér íþróttir,
kempt þig og aldið? - Engu hef ég þar
undan að kvarta,
en óskir á ég
ennþá fleiri.
Brimar mér í blóði
brennandi þrá
átthaga horfna
aftur að líta. - Man ég kæra móður,
hve mjög hún unni
syni sjúgandi
og sæludrukknum,
þá var ég alsæll
ólátabelgur
og elskaði lífið
úr öllum máta. - Fjörugt var samlíf
farið í leiki
og allskyns ærsl
endurtekin,
á bala var svo hvílt
í breiskju sólar,
flatskrokkað, sofið
við sælu drauma. - Eystra sakna‘ ég margs,
sem átthagar
veittu mér til yndis
og unaðssemda.
Heima var ei fluga
húð mína‘ að narta,
gamna sér það svín
nú að gremju minni. - Aldrei fæ ég framar
folöld að líta.
Elska ég þau
og að þeim dáist,
fegurð þeirra
og feikna gáski
fönguðu hug minn
og fegruðu lífið. - Þótti ég í æsku
þekkur miður
stökk ég með stráka
og stefnu réði.
Vildi‘ ég sýna þeim
svart á hvítu
að leiksoppur var ég ei
lyddu-menna. - Væksla set ég lágt
og veimiltítur,
virði þær lítt
og lýt þeim ekki,
en karlmennsku met
og krafta í taugum
og breiðar herðar
sem bera‘ yfir g??ann. - Mörg hafa mein
og mótgangur
amað að líkum
á æskuvegum.
Gleymt er slíkt, en geymd
glóbjört mynd
minninga öllu
yndislegri - Undarlega sterk
er sú innri-rödd,
er hástöfum ómar
frá heimaranni.
Hyllt mig hefur
sá hljómurinn sæti
og sólin borgfirzka
sál mín fangað. - Borgarfjörðurinn
blasti við sjónum
hreifst ég úr hófi
hvarf þá fjarskinn.
Þvílíka þrá
þekkir enginn,
sem ekki‘ elur slíka
í eigin barmi. - Þaut ég sem örskot
yfir hraunfláka,
vegleysur válegar
í voða sprettum,
spann við fótum
og sprungur yfir
hreinfrár hentist
og hikaði aldrei. - Brúnn mér fylgdi,
fetaði rakkur.
Tryggir félagar
fórna oft miklu.
Arinbjörn þá
var Agli mestur,
en ógnum að skefldi
og ofurvanda. - Höfðum við að baki
helveg mikinn,
hjartað mitt dansaði
höfuð lyftist,
hélt ég að brautin
að byggð minni
lægi nú opin
til auðnuheima. - Úr leyni spruttu þá
sprettharðir drengir,
fjórir að tölu
og flæmdu í vígi.
Vörnin var löng
en ljóst var þó síðast,
að enginn má
við margnum. - Hnepptur í hreysi,
hvílík örlög!
Fangelsi fúlt –
frelsi rændur!
Harmar þungir
og hjartasorgir!
Titruðu taugar
af trega og reiði. - Heyrt hafði‘ ég getið
um hauka í búri,
vængheila, fráa,
en þó varnaða flugsins.
Skildi ég nú fyrst
sköp þeirra.
er bergði‘ ég sama
bikar að grunni. - Saga þín að sönnu
virðist svörtu litað.
Flesta kveður sorg
í fylgd með sér,
en í mótlæti skín þér
og skugga lýsir
leiftrandi ljós
liðinna daga. - Mörgum tekst sem þér,
töltarinn prúði,
að fótum fjallsins
finna þeir leiðir.
en brattann ei klífa,
né blíðgeisla finna,
sem verma löndin
í vonarheimum. - Virði ég þeirra
viðleitni mikils,
sem velja stefnu
stórum hærri
flesjum fúnum,
fletra leiðum,
og eiga svo óskir
í óþekkri hæð. - Eigi þú náðir
ætluðu marki.
Sárt þér svíður það
sómans vegna.
En mundu það, Skuggi,
að mennirnir líka
mega oft una
alveg því sama. - Brautir brosandi
og blómum stráðar
ætla þér sér,
en aldrei hitta.
Lenda svo í sjálfheldu
í sölum skugga
í kolsvörtu gili
„kaldir á hjarta“. - Aðhafðist þú,
það, sem innstarödd
bauð þér, bað þig
í bænarrómi.
Dæmi þig hver,
sem dæma þorir
til þín kasta ég
ei kekkjum né steinum.
Í ágústm. 1939. Þórður Kristleifsson.