Ættfræði: Frændur mínir, Jón eldklerkur og Steingrímur skáld

Jón Steingrímsson, kallaður eldklerkur, var fæddur á Þverá í Blönduhlíð 10. september 1728 og dó á Prestsbakka á Síðu 11. ágúst 1791. Hann var prestur, læknir og náttúrufræðingur og þjónaði á Prestsbakka við Kirkjubæjarklaustur á tímum Skaftárelda og síðar móðuhaðinda.

Foreldrar Jóns voru Steingrímur Jónsson og Sigríður Hjálmarsdóttir. Faðir Jóns dó þegar hann var á tíunda ári og þar sem móðir hans var efnalítil voru litlar líkur á að drengurinn kæmist til mennta. En þegar Ludvig Harboe og Jón Þorkelsson Thorcillius fóru um landið, meðal annars til að kanna menntun, vakti Jón athygli þeirra vegna kunnáttu sinnar og eftir inntökupróf vorið 1744 var hann tekinn inn í Hólaskóla. Þeir Harboe og Jón Þorkelsson tóku að sér að greiða skólagjöld fyrir hann fyrsta veturinn en síðan fékk hann skólaölmusu.

Jón lauk stúdentsprófi 1750 og varð síðan djákni og ráðsmaður á Reynistað. Þar giftist hann 1753 ekkju Jóns Vigfússonar klausturhaldara á Reynistað, Þórunni Hannesdóttur Scheving (1718 – 1784), dótturdóttur Steins Jónssonar biskups. Þau fluttu að Frostastöðum í Blönduhlíð sama ár. Þau eignuðust saman fimm dætur, Sigríði, Jórunni, Guðnýju, Katrínu og Helgu, en Þórunn átti líka þrjú börn úr fyrra hjónabandi, Vigfús, Karitas og Jón. Þau ólust upp hjá Jóni og móður sinni og átti Jón eftir að reynast þeim erfiður síðar.

Þórunn átti jarðir suður í Mýrdal og ákváðu þau að flytja þangað. Haustið 1755 flutti Jón að Hellum í Reynishverfi og bjó þar í helli ásamt bróður sínum um veturinn en eiginkona hans kom ekki fyrr en vorið eftir þar sem hún átti von á barni. Á leiðinni suður urðu þeir bræður vitni að upphafi Kötlugossins 1755, sem var mesta Kötlugos á sögulegum tíma. Þá hefur hann líklega fengið áhuga á eldgosum og hann skráði meðal annars sögu Kötlugosa frá landnámi til 1311.

Jón bjó á Hellnum í fimm ár og búnaðist vel, var formaður á árabát og þótti fiskinn. Hann var svo vígður til prests, fyrst í Sólheimaþingum og bjó á Felli, og árið 1778 fékk hann Kirkjubæjarklaustursprestakall og bjó á Prestbakka á Síðu. Um leið varð hann prófastur í Vestur-Skaftafellssýslu.

Á Prestbakka var hann þegar Skaftáreldar hófust árið 1783 og flúði aldrei þaðan, heldur var allan tímann í miðju hörmunganna og eru rit hans helstu heimildir um eldana, en hann skrifaði strax skýrslur um ástandið og árið 1788 samdi hann yfirlitsritið Fullkomið skrif um Síðueld, sem yfirleitt er kallað Eldritið.

Jón varð frægur fyrir eldmessu sína, 20. júlí 1783, sem talin var hafa valdið því að hraunstraumur stöðvaðist áður en hann eyddi byggð, og mjög fór að draga úr gosi.

Þórunn kona Jóns dó árið 1784 og 1787 kvæntist hann seinni konu sinni, Margréti Sigurðardóttur, en þau voru barnlaus.

Jón Steingrímsson var starfandi prestur allt til æviloka árið 1791. Hann skrifaði ævisögu sína sem þó var ekki ætluð til útgáfu, heldur var hún hugsuð fyrir dætur hans og afkomendur þeirra og er að hluta varnarrit og merk heimild um 18. öld. Litlu munaði að hún glataðist því að systursonur hans fékk ritið lánað með því skilyrði að hann brenndi það þegar hann hefði lokið lestrinum en það stóð hann ekki við og því varðveittist ævisagan. Hún var fyrst gefin út 1913 og hefur komið í nokkrum útgáfum síðan.

Jón var vel menntaður og hafði áhuga á mörgu, meðal annars á læknisfræði og stundaði lækningar, skar meðal annars æxli af manni, og skildi eftir sig handrit að lækningabókum. Hann var líka áhugasamur um framfarir í landbúnaði og var verðlaunaður af konungi fyrir garðhleðslu.

Kapellan á Kirkjubæjarklaustri, sem var vígð árið 1974, er helguð minningu Jóns.

(https://is.wikipedia.org/wiki/Jón_Steingrímsson)

 

Steingrímur Jónsson og Sigríður Hjálmarsdóttir

1. Þorsteinn Steingrímsson í Kerlingardal Jón, eldklerkur, Steingrímsson á Prestsbakka
2. Sigríður Þorsteinsdóttir  
3. Vigdís Auðunsdóttur á Grund  
4. Bergsteinn Vigfússon, Torfastöðum  
5. Vigdís Bergsteinsdóttir, Búðarhóli  
6. Bjarni Bjarnason, Laugarvatni  
7. Þorkell Bjarnason, Laugarvatni  
8. Gylfi Þorkelsson, Laugvarvatni  

Eins og fram kemur í færslunni Ættfræði: Föðurættin hér á síðunni  (https://www.gangleri.is/aettfraedi-foduraettin/) er Þorsteinn Steingrímsson, bróðir Jóns eldklerks, faðir Bjarna Thorsteinssonar, amtmanns, en synir hans voru Árni Thorsteinsson, landfógeti og Steingrímur Thorsteinsson, skáld. Kona Þorsteins, móðir Bjarna amtmanns, var Guðríður Bjarnadóttir, sýslumanns í Skaftafellssýslu, Nikulássonar.

„Steingrímur Thorsteinsson (19. maí 1831 – 21. ágúst 1913) var rektor Lærða skólans árin 1872-1913, rithöfundur, þýðandi og skáld.

Steingrímur fæddist á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Hann varð stúdent úr Lærða skólanum í Reykjavík 1851 og sigldi síðan til Kaupmannahafnar og settist í Hafnarháskóla. Þar hóf hann nám í lögum en hætti því og lagði stund á fornmálin (grísku og latínu), sögu og norræn fræði. Hann kom til Íslands 1872 og gerðist þá kennari við Lærða skólann í Reykjavík og varð að lokum rektor hans og því embætti hélt hann til dauðadags.

Steingrímur var mikilvirkur þýðandi og sneri meðal annars á íslensku Þúsund og einni nótt og þýddi Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen. Hann var einnig mikilvirt skáld og orti mörg þjóðþekkt kvæði á borð við Öxar við ána og Yfir voru ættarlandi. Þá þýddi hann fjölda ljóða eftir ýmis frægustu skáld Evrópu og orti sjálfur í anda rómantísku stefnunnar.

Þá var Steingrímur eindreginn fylgismaður Jóns Sigurðssonar í þjóðfrelsisbaráttunni og sýnir kvæði hans Vorhvöt vel afstöðu hans í stormum þeirra átaka.

Sonur Steingríms var Haraldur Hamar rithöfundur.“ (https://is.wikipedia.org/wiki/Steingrímur_Thorsteinsson)

 

Skildu eftir svar