„Gylfi konungur réð þar löndum er nú heitir Svíþjóð.“ … „Hann byrjaði ferð sína til Ásgarðs“ … og … „nefndist Gangleri“ (Úr Snorra-Eddu)
Aðalvalmynd
Leiðarkerfi færslna
← Fyrri
Koma önnur áramótin, í andakt tímans vatnaskil. Af fyrri dögum fyllist nótin. Flögrar minning baka til. Grafa nýjan farveg fljótin. Færist sólin hærra‘ á þil.
Áfram hvert nú liggur leiðin?
Lá í fangið válegt nið?
Verður ströng og viðsjál heiðin?
Var á götu lokað hlið?
Klæðist hlýju nakin neyðin?
Náðist göfugt stefnumið?
Gott að muna, enn og aftur;
allir lifa misjöfn kjör.
Þannig enginn er víst skaptur,
við öllu hafi lokasvör.
Býr í okkur undrakraftur
ef við saman stýrum för.