Straumur

Meðan afi minn, Bjarni Bjarnason, var skólastjóri í Hafnarfirði (1915-1929), keypti hann í félagi við Þórð Edilonsson, lækni, „fjárjörð í nágrenni Hafnarfjarðar, Strauminn“ (Matthías I. 1964. „Líf og starf í 75 ár: rætt við Bjarna á Laugarvatni“. Þjóðólfur, 5. desember). Þar rak hann í 12 ár (1918-1930) stórbú, fjár- og kúabú, samhliða skólastjórninni. „Mér þótti alltaf mest varið í fallegar hámjólka kýr og ég átti 14 kýr í Straumi. Það er svolítið sérkennilegt því þar er mjög léleg grasnyt.  En til stuðnings því, að vit hafi verið í þessu starfi, vil ég segja þér frá því, að til mín kom Þorvaldur Jónsson bóndi í Hjarðarholti í Stafholtstungum. Hann er landskunnur bóndi vegna fyrirmyndar á mörgum sviðum landbúnaðar og hann sagði, að hann hefði aldrei séð 14 kýr í einu fjósi jafn glæsilegar. Margar voru þá nýbornar og allar mjólkandi. Þessu gat ég ekki gleymt“, sagði hann sjálfur um búreksturinn (Sama heimild).

Allir Íslendingar þekkja hið fallega hús í Straumi í Straumsvík, sem blasir við handan víkurinnar frá Álverinu, þegar ekin er Reykjanesbrautin. Húsið byggði afi, eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar, eftir að íbúðarhús og hlaða á jörðinni brunnu til kaldra kola árið 1926. Húsið i Straumi hefur Guðjón því teiknað um sama leyti og hann teiknaði Héraðsskólann að Laugarvatni, fegursta húsið á Íslandi. 

Hér fylgir grein Gísla Sigurðssonar um jörðina Straum úr Lesbók Mbl. árið 2000, og þar á eftir samtímafrétt úr Vísi um brunann í Straumi.

Straumur

Af Hraunabæjunum er Straumur kunnastur og helgast einkum af því að glæsilegt timburhús í burstabæjarstíl hefur staðið þar í meira en hálfa öld og blasir við af Keflavíkurveginum hjá Straumsvík. Þrátt fyrir álverið austan víkurinnar, aðeins snertuspöl frá, er Straumsvík með því fegurra í ríki náttúrunnar við Faxaflóa. Hún lætur samt ekki mikið yfir sér víkin sú arna; þar eru hvorki sjávarhamrar eða skriður í sjó fram né neitt það sem kalla má stórbrotið. Það er hin smágerða fegurð sem þarna á sitt konungsríki og hún er aldrei eins frá degi til dags og síbreytileg frá morgni til kvölds vegna þess að birtan ræður úrslitum um það hvernig hún nýtur sín, svo og munurinn á flóði og fjöru. Menn hafa að sönnu lítinn tíma til að gaumgæfa þetta á fullri ferð um Keflavíkurveginn, en það er meira en ómaksins virði að staldra við, leggja bílnum og ganga niður að víkinni þar sem húsin í Straumi speglast oft á lognkyrrum dögum og hraunið gengur í samband við vatnið. Það er ótrúlegt, en samt satt, að stórhuga menn höfðu einhverntíma í hyggju að gera uppfyllingu í víkina; eyða henni og byggja þar þilplötuverksmiðju.

Umhverfi Straums er þó ef til vill ævintýralegast við Brunntjörn, lítið eitt vestar, þar sem bröttum hraunhóli með fallegum hraunreipum snarhallar niður að vatninu og speglast í því á lygnum degi. Hafa lærðar ritgerðir verið skrifaðar um sérkennilegt lífríki í Brunntjörn, til að mynda dvergbleikju, sem ekki er til annars staðar en í lónunum þarna og virðist ganga milli þeirra, enda mikill vatnsgangur undir hrauninu.

Dvergbleikjan er sérkennileg í útliti og ekki beint gáfuleg. En hún plumar sig við þessar aðstæður og segir svo í samantekt þriggja náttúrufræðinga sem birtist í Náttúrfræðingnum 1998:

„Það að dvergbleikja skyldi finnast þar er eitt og sér markvert í ljósi þess hve fátítt þetta bleikjuafbrigði er í vatnakerfum landsins. Einnig kemur þar til að lífshættir bleikjunnar á þessu svæði eru einstakir, því ekki er vitað til þess annars staðar að dvergbleikjur nýti sér í senn umhverfi ferskvatns og sjávar.“

Í tjörnunum við Straumsvík verður verulegur munur á vatnshæð eftir sjávarföllum eins og í lónunum við Lónakot. Á útfiri verður stríður straumur milli tjarnanna og kemur í ljós að lækir og jafnvel miðlungsstór á sprettur fram undan hrauninu. Sumpart gæti það verið Kaldá sem rennur á víð og dreif undir hraunin allar götur vestur í Straumsvík og sumpart neðanhraunsvötn með upptök sunnar við fjallgarðinn.

Straumur er stór jörð sem bezt sést af því að hún á land til móts við Krýsuvík. Austanmegin er land Þorbjarnarstaða, en land Óttarsstaða að vestan. Straumur hafði hinsvegar þann annmarka sem bújörð, að þar er nánast ekkert tún og heima við er varla hægt að tala um ræktanlegt land.

Ekki lét Bjarni Bjarnason, síðar skólastjóri á Laugarvatni, það aftra sér frá því að hefja fjárbúskap í stórum stíl í Straumi þegar hann var skólastjóri í Hafnarfirði. Hann hefur ekki fundið kröftum sínum fullt viðnám við kennslu og skólastjórn svo kappsfullur og átakamikill sem hann var. Bjarni eignaðist Straum og hóf búskap þar 1918, þá ókvæntur. Fallegur burstabær sem fyrir var á jörðinni brann til kaldra kola 1926, segir Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Óttarsstöðum, sem horfði á eldsvoðann. En Bjarni hefur ekki látið þetta áfall draga úr sér kjarkinn, heldur snúið sér að því á næsta ári að koma upp nýju húsi.

Með fullu starfi varð Bjarni að byggja búskapinn í Straumi á aðkeyptu vinnuafli og ólíklegt að nokkur maður hafi rekið stærra bú í Hraunum fyrr eða síðar. Ég hef fyrir því orð Þorkels sonar hans á Laugarvatni, að Bjarni hafi haft 400 fjár í Straumi, en Þorkell fæddist í Straumi 1929, sama ár og Bjarni flutti austur að Laugarvatni. Búskap hans í Straumi lauk þó ekki fyrr en 1930.

Nærri má geta að mjög hefur verið treyst á vetrarbeit, en samt verður ekki hjá því komizt að eiga allverulegan heyfeng handa 400 fjár, ef jarðbönn verða. Þeirra heyja varð aðeins aflað að litlu leyti í Straumi og mun Bjarni hafa heyjað austur í Árnessýslu.

Lítið eða ekki neitt sést nú eftir af fjárhúsunum, en eins og áður var vikið að, byggði Bjarni af verulegum stórhug hús í burstabæjarstíl, ólíkt þeim lágreistu byggingum sem fyrir voru á Hraunabæjunum. Húsið í Straumi stendur enn; það er staðarprýði og fellur ákaflega vel að umhverfinu.

Ekki kemur á óvart að höfundur hússins er Guðjón Samúelsson, arkitekt og húsameistari ríkisins, og hefur hann þá teiknað húsið um líkt leyti og Laugarvatnsskólann. Teikningin er til og merkt manni sem að líkindum hefur starfað hjá Guðjóni, en Þorkell Bjarnason á Laugarvatni segir, og hefur það eftir föður sínum, að Guðjón sé arkitektinn. Það er einnig staðfest á minningarskildi sem upp var settur í Straumi.

Ýmisskonar búskapur var um árabil í Straumi, þar á meðal svínabú. Í meira en 20 ár bjó enginn í húsinu og það var að grotna niður, bæði að innan og utan. Sáu sumir þann kost vænstan að rífa húsið, en ekki varð þó af því og Hafnfirðingar sýndu þann metnað að vilja varðveita það.

Sett var á laggirnar menningarmiðstöð í Straumi með vinnuaðstöðu fyrir listamenn. Sverrir Ólafsson myndhöggvari hefur frá upphafi verið forstöðumaður listamiðstöðvarinnar, auk þess sem hann hefur eigin vinnustofu í Straumi. Það kom í hans hlut að endurgera húsið að innan og utan með fulltingi Hafnarfjarðarbæjar og styrk frá Álverinu og einstaklingum. Hlöðunni hefur verið breytt í 150 fermetra sýningarsal eða vinnustofu sem fær birtu frá þrem kvistgluggum á framhliðinni. Þar fyrir aftan er stór vinnustofa með þakglugga og birtu eins og allir myndlistarmenn sækjast eftir.

Á þeim áratug sem listamiðstöðin í Straumi hefur starfað hafa um 1000 listamenn dvalið í Straumi; fólk úr öllum listgreinum og frá 32 þjóðlöndum. Í þeim hópi eru rithöfundar, kvikmyndagerðarmenn, tónlistarfólk, arkitektar, hönnuðir, málarar, myndhöggvarar og leirlistafólk.

Í íbúðarhúsinu eru íbúðir fyrir listamenn; þar geta búið 5 í einu. Mikil spurn er eftir vinnustofum í Straumi, sem menningarmálanefnd Hafnarfjarðar og forstöðumaðurinn ráðstafa, enda eru allskonar verkfæri látin í té.

Straumsland náði lítið eitt út með Straumsvíkinni að norðan en fyrst og fremst er það í hrauninu fyrir sunnan. Bæjarstæðið í Straumi var fyrr á tímum á sama stað, en túnin voru ekki annað en smáblettir og hefur líklega munað mest um Lambhúsgerði sem þekkist af hlöðnum grjótgarði lítið eitt vestan við Straum. Við bæinn var sjálft Straumstúnið, sem aðeins var smáskiki, og sunnan við Keflavíkurveginn var ein skák til viðbótar og grjótgarður í kring; þar hét Fagrivöllur.

Gísli Sigurðsson. 2000. „Straumur“. Lesbók Morgunblaðsins, 18. mars.

 

Frétt í Vísi daginn eftir brunann í Straumi, sem getið er um í grein Gísla Sigurðssonar, hljóðar svo:

Bruni.

Í gærkveldi kom upp eldur í íbúðarhúsinu á Straumi í Hraunum í Garðahreppi. Húsið var gamalt timburhús og læstist eldurinn um það á svipstundu. Brann það til ösku, og einnig heyhlaða, sem áföst var við það. Mjög litlu varð bjargað úr íbúðarhúsinu, en nokkru af heyi úr hlöðunni. –

Talið er að kviknað hafi í út frá reykháfi íbúðarhússins. – Bjarni Bjarnason skólastjóri í Hafnarfirði hafði rekið bú á Straumi um nokkurn tíma, og bíður hann mikið tjón af bruna þessum, því að húsið var lágt vátrygt.

 

 

Skildu eftir svar