Ættfæði: Föðurættin – Af sr. Auðunni Jónssyni á Stóruvöllum í Landsveit

Sr. Auðunn Jónsson var kominn í beinan karllegg af Jóni Arasyni, biskupi, svona: Faðir sr. Auðuns var sr. Jón Hannesson á Mosfelli í Mosfellssveit, sonur Hannesar bónda í Marteinstungu í Holtum, Jónssonar á Reykjarhóli í Fljótum, Magnússonar á Reykjum, Eiríkssonar í Djúpadal í Skagafirði, Magnússonar á Reykjum, og var Magnús sonur sr. Björns á Melstað, Jónssonar Arasonar.

Bróðir sr. Auðuns var Arnór prófastur í Vatnsfirði en systir þeirra var Þóra, sem átti Árna stúdent Davíðsson í Belgsholti. Voru synir þeirra Hannes prestaskólakennari og sýslumennirnir Arnór og Jóhann.

Sr. Auðunn drukknaði í Ytri-Rangá 8. ágúst 1817, aðeins 47 ára að aldri. Kona hans var Sigríður Magnúsdóttir frá Indriðastöðum í Skorradal. Höfðu þau eignast saman sjö börn þegar Auðunn féll frá. Var sr. Auðunn talinn kennimaður góður, atgerfismaður og búsýslumaður, en vínhneigður nokkuð.

Börn þeirra ílentust flest í Rangárþingi og voru meðal þeirra: Steinunn kona Jóns Þórðarsonar í Eyvindarmúla en Auðunn, sonur þeirra, bjó þar lengi og nú Þórður, einn sona hans. Sigríður kona Einars Ísleifssonar á Seljalandi. Guðrún átti Ólaf Einarsson hreppsstjóra á Núpi. Þóra varð síðar kona sr. Þórðar Árnasonar á Mosfelli og varð dóttir þeirra Sesselja, kona sr. Þorleifs Jónssonar á Skinnastað. Vigdís átti Vigfús Gunnarsson og fluttu þau að Grund í Skorradal. Dóttursynir voru hinir kunnu Grundarbræður, Bjarni á Grund, Vigfús á Gullberastöðum, Guðmundur á Skálpastöðum og Snjáfríður, síðari kona Kristleifs á Stóra-Kroppi. Þau systkinin voru þremenningar okkar bræðra, segir Kristján á Garðsstöðum við Djúp.

En margt Rangæinga er skylt okkur í þriðja og fjórða lið, meðal þeirra Bjarni á Laugarvatni (Úr bókinni Af sjónarhóli, eftir Kristján frá Garðsstöðum, Ögurhreppi).

Úr minningakistu Bjarna Bjarnasonar

Skildu eftir svar