Barnauppeldið var á vissan hátt til fyrirmyndar, að vísu voru til mjög fátæk heimili, sem hvorki gátu klætt börn sín né fætt svo vel væri, en börnin vou svo góð að ég kynntist aldrei á langri ævi betri börnum og unglingum en hér voru árin mín í Hafnarfirði.
Ég réðst hingað til Hafnarfjarðar að loknu kennaranámi vorið áður (1912) og kenndi hér unz ég fór að Laugarvatni 1929. Hafnarfjörður var sérkennilegur bær, húsin voru reist í sveig fyrir opnum firðinum við hraunklettana. Það var skýlt hér í öllum áttum nema þegar hann var að vestan. Samgöngutæki voru aðeins hestvagnar til vöruflutninga, en fólkið ferðist mest fótgangandi, fáir áttu hesta. Það var tveggja tíma gangur til Reykjavíkur og fólk bar pinkla sína. Fyrst eftir að bílar komu áttu fæstir hér aura aflögu til að borga fargjaldið.
Einn þáttur í sögu Hafnarfjarðar er merkari en annarsstaðar. Jóh. J. Reykdal virkjaði bæjarlækinn og kveikti hér fyrstu rafljósin á Íslandi 1904. Auk þess lét hann rafmagnið snúa vélunum í timburverksmiðju sinni, Dvergi.
Fyrsta veturinn fékk ég 50 kr. á mánuði í laun, alls 450 kr. í árslaun. Þá kostaði fæði á dag á Hótel Hf. 1,00 kr., herbergi í Bröttugötu 6 kr. 6,00 á mánuði og þjónusta 6,00 kr. Þá var eftir að greiða útsvar, fatnað, ferðalög, bækur og skemmtanir, en ég kenndi leikfimi í Flensborg og fékk smá greiðslu fyrir það, auk þess kenndi ég leikfimi í bænum og glímu bæði bæjarmönnum og í Flensborg en það var allt sjálfboðavinna.
Eftir fyrsta veturinn hér var ég eitt ár í Kaupmannahöfn og lauk kennaraprófi þar í leikfimi, sundi og bóklegum greinum, sem tilheyrðu námi íþróttakennara. Lárus Bjarnason var þá skólastjóri barnaskólans, hann hafði 1200 kr. í árslaun. Kennarar voru Friðrik Bjarnason, Valgerður Jensdóttir og Sigurður Ólafsson. Síðan vann ég með fjölda kennara í Hafnarfirði, bæði við barnaskólann og í Flensborg.
Barnaskólahúsið var tvær kennslustofur og tvísett í þær, auk þess var kennt í Bergen. Lárus Bjarnason fór frá skólanum 1914 og gerðist kennari í Flensborg. Eftirmaður hans við barnaskólann varð Þórður Guðnason frá Ljótarstöðum í A-Landeyjum, gáfaður maður og gæddur lifandi áhuga, en hann missti heilsuna, en ég hélt starfi hans opnu sem skólastjóri þar til vonlaust var um bata Þórðar.
Ég var skipaður skólastjóri 1918 og gegndi því starfi unz ég fór að Laugarvatni 1929. Á þeim tímum, sem ég flutti til Hafnarfjarðar voru ekki peningar í gangi. Flestir þeir menn, sem veittu verkafólki atvinnu, höfðu einnig verzlun og greiddu kaupið í vörum, þeir réðu kauptaxtanum og verðinu á búðarvarningnum, og einnig á sjávaraflanum. Þetta var siður um allt land þar til verkalýðsfélögin komu til sögu og breytti aldargömlu réttleysi verkafólks í eðlileg samskipti þess við vinnuveitendur. Þetta gerðist í Hafnarfirði á mínum fyrstu árum hér.
Félagslíf var þá orðið fjölþætt. Allir skemmtu sér saman, hvar sem þeir skipuðu sér í fylkingar mannvirðingar. Ég held að góðtemplarastúkurnar hafi haft mest áhrif til góðs, einnig kvenfélögin með hjálpsemi þeirra við sjúka og bláfátæka. Stúkan „Morgunstjarnan“ var stofnuð 1844. Sigfús Bergmann gerði tilraun til að halda uppi stúku fyrir norska sjómenn. Einnig má nefna barnastúkur, svo og KFUM og K, íþróttafélög, ungmennafélög o.fl.
Margir menn lögðu mikið á sig í þágu kirkjusöngs, þar á meðal Friðrik Bjarnason, tónskáld. Hann stýrði í fjölda ára söngfélaginu Þresti. Frumkvöðull í bæjarstjórn að stofnun Bókasafns Hafnarfjarðar var Gunnl. Kristmundsson kennari og sandgræðslustjóri og burðarásar Magna og Hellisgerðis voru þeir Guðmundur Einarsson, forstjóri Dvergs, og Ingvar Gunnarsson, kennari.
Flensborgarskólinn veitti mikilli fræðslu og menningu yfir bæinn allt frá 1882. Skólastjórarnir Jón Þórarinsson og Ögmundur Sigurðsson voru þjóðkunnir afburðamenn. Þegar kom fram á annan tug aldarinnar færðist atvinnulífið í aukana með hafnargerð og togaraútgerð. Bæjarbragur var skemmtilegur og góðvilji ríkjandi milli fólks. Eini árgreiningurinn, sem ég man kom upp innan þjóðkirkjunnar vegna prestkosningar. Þá var fríkirkjan stofnuð, en það sundurlyndi hvarf og kirkjurnar tvær hafa starfað í nábýli með bróðurlegum samskiptum. Stjórnmálaflokkar voru þá ekki til hér.
Barnauppeldið var á vissan hátt til fyrirmyndar, að vísu voru til mjög fátæk heimili, sem hvorki gátu klætt börn sín né fætt svo vel væri, en börnin voru svo góð að ég kynntist aldrei á langri ævi betri börnum og unglingum en hér voru árin mín í Hafnarfirði. Tveimur-þremur árum áður en ég fór héðan var reist nýtt skólahús og er það hluti af skólahúsinu við Lækinn. Kj. Ól. átti frumkvæði í bæjarstjórn að því verki. Árin sem við vorum í nýja skólanum var enginn fatasnagi brotinn og ekkert sá á húsinu né munum þess. Sannar þetta það, sem ég sagði fyrr um uppeldi barnanna, hugsunarhátt þeirra og foreldranna. Metingur milli barna frá efnuðum heimilum og fátækum þekkist ekki. Hamingja fylgi Hafnfirðingum.
Bergur Jónsson skiptjóri á „Surprise“ var síðasti skútuskipstjóri í Hafnarfirði, hann er eftirminnilegur maður, hann missti aldrei mann á langri skipstjórnartíð, sumir sögðu að aldrei hefði slitnað hjá honum kaðall. Hann var prúðmenni mikið. Margt myndarlegt fólk setti svip sinn á bæjarlífið. Fjöldi hjóna og ungs fólks var sérlega myndarlegt og nokkrir báru af vegna glæsimennsku. Hafnfirðingar voru greint fólk og harðduglegt.
(Úr minningakistu Bjarna Bjarnasonar)