Þannig þróaðist nú þetta, að ég varð skólastjóri en það get ég sagt þér, að fátæktin var mitt lang erfiðasta, viðkvæmasta og um leið jafnvel mitt mesta áhyggju og áhugaefni, þótt ef til vill sé einkennilegt að orða þetta svona. Mörg barnanna voru svöng og enn fleiri voru illa klædd í kuldum og úrkomu. Allmarga drengi vantaði gersamlega skjólföt. Ef drengir blotnuðu illa, gátu þeir ekki komið í skólann daginn eftir vegna fataleysis. Þegar börn vantaði í skólann og engin boð komu um ástæðuna, fór ég heim til þeirra. Ég gat jafnan lítið gert, en reyndi að hughreysta foreldrana og talaði svo við ráðamenn um úrbætur.
Bjarni Bjarnason, fyrrverandi skólastjóri og alþingismaður, sem allir Íslendingar þekkja undir nafninu Bjarni á Laugarvatni, varð 75 ára 23. okt. sl.
Svo lengi hefur Bjarni á Laugarvatni og athafnir hans átt sess í meðvituna landsmanna, að mest líkist því, að væri hann fornsagnapersóna á borð við Egil Skallagrímsson eða Snorra goða, ekki holdi klæddur afrekskmaður samtíðarinnar.
Bjarni er afreksmaður í orðsins beztu merkingu. Í æsku var hann íþróttagarpur, í upphafi starfsferils síns sem kennari og skólastjóri innleiddi hann nýjar starfsaðferðir, sem vöktu verðskuldaða athygli, hann var hinn skapandi andi og aflgjafi menntasetursins Laugarvatns, hann var aðsópsmikill stjórnmálamaður og er enn í dag hlaðinn trúnaðarstörfum í þágu almennings.
Þennan mann tók ég tali er hann kom úr langri reisu í þágu hestamanna og úr afmælisdvöl hjá dóttur sinni á Húsavík, hnarreistur og spengilegur, rétt eins og hann væri að koma úr heilsubótarnuddi á Hótel Sögu. En Bjarni hefur ekki þurft á slíkri meðölum að halda um ævina. Hans heilubrunnur hefur verið óþrotlegt starf og reglusamt líferni, hér kemur viðtalið:
Æskan og uppvöxturinn
Stjúpi minn dó í Skálmholtshrauni í ársbyrjun 1904. Móðir mín bjó þar áfram með okkur 3 yngstu systkinunum 2 næstu ár. Ég var þá nýfermdur og aðalvinnukrafturinn. Ég undi þessu vel. Ég var mjög hneigður fyrir skepnur og mér þótti vænt um þær.
Ég ætla að hefja þetta viðtal á þessari klassisku spurnarformi, Bjarni, um ætt og uppruna.
Foreldrar mínir voru Ragnæingar. Faðir minn Bjarni Guðmundsson Sigurðssonar, var Landeyingur en móðir mín Vigdís Bergsteinsdóttir frá Torfastöðum í Fljótshlíð. Bergsteinn afi minn var fjórði maður frá Bjarna Halldórssyni á Víkingslæk, hann var risi stór, afburða kraftmaður og reri hjá þrem Kötlum í Kotvogi, skrifaði fagra rithönd og sagður vel hagmæltur
Foreldrar mínir giftust 1881og byrjuðu búskap á Búðarhóli í A-Landeyjum sem er samtýnis Búðarhólshjáleigu, þar sem föðurafi minn bjó, en er hann hætti búskap 1890, fluttu foreldrar mínir á hans jörð og yngsti bróðir minn er fæddur þar 1892.
Ég átti þrjár systur: Jórunni, Kristínu og Guðríði og einn bróður, Bergstein. Hann var yngstur og fór til Ameríku 1911 og var þar bóndi og síðar póstafgreiðslumaður. Hann dó í Winnipeg 1946.
Guðríður giftist, hún dó ung frá ungum syni, Bjarna, nú bifreiðarstjóri í Reykjavík.
Kristín fór til Washingtonríkis í Bandaríkjunum, er nú háöldruð. Elzta systir mín, Jórunn, var 30 ár yfirhjúkrunarkona á Kleppi. Hún dó 1938. Við Kristín erum því ein á lífi af okkar systkinum. Faðir minn var oddviti og framtakssamur, reisti t.d. timburhús á Búðarhólshjáleigu um 1890, sem var eina timburhúsið, er ég sá svo vel gert, þegar ég var drengur. Hann dó frá barnahópnum rúmlega fertugur.
Móðir mín giftist aftur Þóroddi Sigurðssyni. Hann var ágætismaður. Þau fluttu búferlum 1901 að Skálmholtshrauni í Villingaholtshreppi og bjuggu þar í nokkur ár.
Einn vetur var ég á Kiðjabergi og lærði undir fermingu. Húsfreyjan, Soffía Sigurðardóttir og móðir mín voru góðir kunningjar að austan. Ég naut þess og drenglyndis Gunnlaugs Þorsteinssonar húsbónda. Á heimilinu voru fleiri tökukrakkar en ég og sex systkini. Ég var meðhöndlaður eins og þau og engin greiðsla tekin fyrir. Á Kiðjabergi eignaðist ég vini. Sú vinátta hefur haldizt síðan. Heimiliskennari þann vetur var Þorleifur Guðmundsson, síðar alþingismaður.
Stjúpi minn dó í Skálmholtshrauni í ársbyrjun 1904. Móðir mín bjó þar áfram með okkur 3 yngstu systkinunum 2 næstu ár. Ég var þá nýfermdur og aðalvinnukrafturinn. Ég undi þessu vel. Ég var mjög hneigður fyrir skepnur og mér þótti vænt um þær. Um sauðburðinn vakti móðir mín mig ætíð fyrir fótaferðatíma ef eitthvað var að veðri til þess að gæta ánna og fór ég á kvöldin líka. Ærnar voru venjulega um 60. Landið var hraunhólótt og ósjaldan duttu lömbin í holur en ég fann þau alltaf vel lifandi því ég leit svo eftir ánum, að þær voru aldrei farnar frá holunum þegar ég kom og fann þær. Ég grét ef ég missti lamb, en það kom sjaldan fyrir. Hvert lamb þekkti ég eins örugglega eins og þau væru leiksystkini mín. Fjölskyldunni leið vel efnalega og ég hef góðar endurminningar frá árunum í Skálmholtshrauni að flestu leyti.
Árið 1906 giftist Guðríður systir mín Guðmundi Jónssyni bónda í Útverkum. Hann var hófsemdarmaður, bragðaði hvorki tóbak né áfengi og var það fágætt um stórbændur í þá daga. Þau bjuggu eitt ár á Ólafsvöllum en árið eftir keyptu þau Auðsholt í Ölfusi. Fjölskyldan flutti þangað öll og við þann bæ var ég kenndur nokkur næstu árin sem þekktur glímumaður.
Hvar lærðu þið ungu mennirnir að glíma?
Hvar sem strákar hittust, við kirkju, í skólum, í smalamennsku, í réttum, svo ég tali ekki um í verinu, þegar landlegur voru, þá var alltaf glímt. Á Sultarfit á Flóamannaafrétti man ég eftir fjölmennri bændaglímu. Þá lagði Valdimar í Norðurgarði alla, flesta á haldbragði, sem þá var leyfilegt að nota. Þessi tækifæri eru ekki notuð núorðið.
Þú hefur gefið þig að fleiri íþróttum en glímunni og sjálfsagt staðið þig vel?
Jæja, ég skal segja þér, að sem íþróttamaður var ég svipdaufur, vann að vísu oft verðlaun í glímu og þar á meðal Skarphéðinsskjöldinn tvisvar, en við skulum ekki lengja samtalið með því að fara út í þá sálma.
En ef þig langar að heyra um mína slyngustu keppinauta hér austanfjalls þá voru það þeir Ásgeir sálugi Eiríksson, Haraldur Einarsson frá Kerlingadal, bræðurnir Ágúst og Sighvatur frá Hemlu. Þetta voru skæðir glímumenn og drengilegir í keppni, en frá glímu minni í Reykjavík og keppni yrði allt of langt mál og ég held við ættum að sleppa því að mestu.
Ég vil þó fúslega játa, að á skólaárum mínum rækti ég námið ekki svo vel sem skyldi vegna ýmissa áhugamála, einkum íþrótta, sem ég stundaði af lífi og sál. Ég æfði í tveim glímufélögum í Reykjavík og glímdi oft kappglímur, æfði sund og var í aukatímum á kvöldin í leikfimi. Ég sótti fyrirlestra til dr. Guðmundar Finnbogasonar, Einars Kvaran o.fl., en enginn stjórnmálafundur fór fram hjá mér og þeir voru ósjaldan. Þú sérð á þessu, Matthías, að ég hefi þótzt þurfa að sinna ýmsu. Þrisvar synti ég nýárssundið í Reykjavíkurhöfn með Erlingi og fleiri félögum. Það var siður þá eins og nú að skemmta sér frameftir nýársnóttinni. Ég tók líka þátt í því. Eitt sinn í Hafnarfirði eftir slíka vökunótt, tók ég hjólhestinn minn snemma morguns og var kominn aftur á hjólinu fyrir hádegisverð með silfupening, II.verðlaun fyrir nýárssund. Þann vetur synti ég í sjó á hverjum degi, ýmist aleinn eða með Flensborgarpiltunum á kvöldin eftir glímuæfingar.
Segðu mér eitthvað frá þínum skólaárum, Bjarni.
Farkennslu naut ég eins og gerðist sem drengur. Um tíma hafði ég ágætan kennara, Stein Sigurðsson skáld, föðurbróður séra Sigurðar skálds Einarssonar í Holti. Skólinn var hjá okkur í Búðarhólshjáleigu. Steinn var mjög góður við mig og ég svaf í rúminu hjá honum fram í stofu. Hin börnin komu gangandi í skólann á hverju sem gekk.
Næst kom svo Flensborgarskólinn. Þar var ég tvo vetur fram að vertíð. Ég réri frá Þorlákshöfn hjá hinum alkunna fiskikóngi Jóni Jónssyni á Hlíðarenda. Ég var mjög hrifinn af Jóni. Þegar ég kom til hans, var hann orðinn 57 ára og hafði verið formaður í Höfninni í 35 ár en áður en hann lauk var hann formaður í 47 ár, missti aldrei mann og lenti aldrei öll þessi ár utan þeirrar hafnar, sem hann réri frá. Hann lenti sem sé aldrei í sjóhrakningum.
Gaman væri að heyra um einhverja minnisverða atburði og menn frá þinni sjómannstíð í Þorlákshöfn.
Það er ekki hægt. Sá þáttur er að vísu til í mínum fórum en hann er of langur í þetta sinn, en það get ég sagt, að þessar tvær vertíðir reyndi ég margt, sem ég vildi ekki hafa án verið á lífsleið minni. Þrátt fyrir þjáningar sjóveikinnar, svefnleysi og mikla þreytu í fiskihrotum og iðjuleysi í frátökum, er svo margs góðs að minnast frá félögum mínum, að það yfirgnæfir hið verra.
Nákvæmlega, þegar ýtt var frá landi og í lendingu, sameining mannsaflsins og órofa samheldni skipshafnarinnar alltaf og allsstaðar þegar þess var krafizt, verður mér gildismikill skóli, þó ég kannske aldrei meti það til fulls. Hef ég þó reynt að gera mér dyggðir félaga minna sem sjómanna í verstöð í byrjun þessarar aldar minnisstæðar sem fyrirmynd í daglegu starfi.
Þú hefur ekki getað lokið prófi í Flensborg með því að fara í verið á miðjum skólavetri?
Efnahagur leyfði mér ekki að sitja skólabekk til prófs þau árin. Bróðir minn, sem var yngri en ég, gekk fyrir. Hann lauk prófi eftir báða vetur og varð gagnfræðingur. Ég var eldri og varð að vinna.
Hvað olli því, að þú fórst síðan í Kennaraskólann?
Það er eðlilegt að þú spyrjir um þetta. Í Flensborgarskólanum var stofnuð kennaradeild 1896. Við, sem vorum í gagnfræðadeildinni, litum upp til kennaranámsmanna. Einnig var nokkur straumur úr gagnfræðadeild í kennslustörf. Árið 1908 hófst kennaraskólinn í Reykjavík. Nemendur Flensborgarskóla og kennaraskólans heimsóttu gagnkvæmt þennan vetur, og kennarabekkurinn og við kynntumst dálítið. Þá sá ég svo gjörfulega menn, að þegar hreifst af þeim, enda urðu margir af þeim þjóðkunnir menn. Þá sá ég fyrst Jónas Jónsson kennara. Hann varð síðar minn bezti lífsförunautur. Ráðleggingu um val á skóla fékk ég enga, en kynni mín af kennaraskólafólki olli vali mínu.
Með kennaraskólanum var ég vor og haust í vegavinnu í Mosfellssveit undir verkstjórn bræðranna Skúla og Elliða Norðdal. Eitt sinn sendi Elliði mig á hjóli til Reykjavíkur til Ben. Þór. Ég átti að kaupa eina flösku af brandy. Hún kostaði eina krónu.
Á sumrin var ég í kaupavinnu hér og þar. Kaupið var 30 aurar um tímann í vegavinnunni og 2 aura fékk ég til viðbótar, þegar ég var flokksstjóri, en 16 kr. um vikuna í kaupavinnu. Að vetrinum kostaði sæmilegt fæði eina krónu á dag, herbergi og þjónusta 12-14 krónur á mánuði. Reynslan var sú, að allt skólafólk var skuldugt að loknu námi, fengi það ekki fjárhagslega hjálp. Kom út á eitt, þó það hefði vinnu hvern dag skólaleyfis. Ég fór t.d. í vinnu sama dag og skólanum var sagt upp og kom ekki aftur fyrr en daginn sem hann var settur.
Ég lauk kennaraprófi 1912 og íþróttakennaraprófi í Kaupmannahöfn 1914.
Var það ekki heldur fágætt, að ungir menn brigðu sér til útlanda til sérnáms í íþróttum?
Á undan mér höfðu farið tveir menn í sama skóla, Lárus Rist og Björn Jakobsson. Ingibjörg Brands hafði einnig farið til útlanda þessara erinda á sínum tíma. Má því segja, að þetta var mjög óvenjulegt, en Lárus Bjarnason, hinn landskunni skólamaður, hvatti mig eindregið til þess, þegar við kenndum saman einn vetur, að fara utan og fullnuma mig í einhverri sérgrein, og er honum ævinlega þakklátur fyrir það. Sjálfur hafði hann tekið sem sérgrein við kennaraháskólann í Kaupmannahöfn náttúrufræði og sögu.
Hvað getur þú sagt mér frá námstíma þínum í Kaupmannahöfn?
Það er svo sem ekkert frá að segja. Ég stundaði námið all vel og sumir kennararnir voru mér mjög góðir. Einn þeirra kom til mín á hverjum morgni, aldraður maður, og sagði mér veðurfréttir frá Íslandi. Aðrir voru hádanskir og stundum stóð ég svolítið upp í hárinu á þeim og þeir kunnu þá að refsa fyrir það á prófi, en að lokum varð mikil vinátta milli mín og félaga minna og kennaranna. Ég hafði símtal við þá í hvert skipti, sem ég kom til Kaupmannahafnar eftir þetta og félagar mínir heimsóttu mig að Laugarvatni, þ.á.m. einn sem varð landbúnaðarráðherra, Sörensen að nafni. Hafði ég því samfellda gleði af félögum mínum og kennurum, þótt stundum kastaðist í kekki af því ég var auðvitað of íslenzkur. Ég fékk að flýta lokaprófinu svo ég slapp heim fyrir stríðið.
Skólamaðurinn – og skólastjórinn
Mér fannst skipti mín við börnin öllu skemmtilegri en við unglingana. Einlægni og sannleiksást barna er svo hrífandi, að sambúðin við þau göfga hvern hugsandi mann.
Hvernig hófst sjálft lífsstarfið?
Að loknu kennaraprófinu 1912 fékk ég stöðu við barnaskólann í Hafnarfirði og var þar lengst af skólastjóri þar til ég fór að Laugarvatni 1929.
Hvernig voru launin?
Barnaskólinn starfaði í 8 mánuði, árslaun voru um 450 krónur. Á þessu var ekki hægt að lifa, svo að ég varð að kenna mikið í aukatímum, einkum við Flensborgarskóla fyrir 1,50 til 2,00 krónur á tímann. Síðar setti ég upp 3 krónur, það þótti ekki sanngjarnt og olli óánægju meðal þeirra, sem áttu að greiða. Ég var hinn stífasti, því ég vissi, að unga fólkið vildi hafa mig.
Á sumrin vann ég við heyskap fyrir Þórð lækni á Kleppi, þann afbragðsmann. Félagar mínir við vinnuna voru eingöngu sjúklingar. Karlarnir treystu mér og ég hafði gaman af þeim. Jórunn systir mín var þá yfirhjúkrunarkona á hælinu og móðir mín matráðskona. Þórður læknir var okkur öllum mjög góður og trygglyndi hans var óbilugt. Hann var skemmtilegur, frjálslyndur, gáfaður lærdómsmaður. Ég held að Þórður og séra Magnús Helgason, skólastjóri, hafi verið mér beztir í vanmætti mínum sem efnalítill námsmaður.
Hvernig átti þetta við þig, Bjarni, svo gjörvilegan ungan mann, nýkominn frá íþróttanámi erlendis, að fara að kenna börnum og annast þau í skólanum?
Mér fannst skipti mín við börnin öllu skemmtilegri en við unglingana. Einlægni og sannleiksást barna er svo hrífandi, að sambúðin við þau göfga hvern hugsandi mann.
Ég var þrjú síðustu árin mín í Hafnarfirði skólastjóri í nýja barnaskólanum. Ekkert sá á munum skólans eftir þann tíma, enginn fatasnagi brotnaði. En kennararnir voru líka mjög reglusamir og gættu vel að öllu. Aðalatriðið var þó það, að börnin vildu vera góð og trú.
Ég minnist þess Bjarni, frá bernskuheimili mínu í Hafnarfirði, að um þig var oft rætt sem afburða skólamann og stjórnanda. Sagt var, að þú værir mjög strangur en samt var einhvernveginn sá tónn, að jafnt nemendum sem foreldrum félli vel þinn strangleiki og þá viðurkenningu fær ekki annar en sá, sem kann tökin.
Já, þú veizt nú eitthvað um þetta, því systkini þín voru í skóla hjá mér en þú varst vaxinn upp úr grasi, þegar fjölskylda þín fluttist til Reykjavíkur, en það var víst alveg um það leyti, er þú áttir að hefja nám hjá mér. Nemendur mínir frá þessum árum hafa reynzt mér trölltryggir og góðir vinir enn í dag.
Hafnfirðingar sögðu, að þú hafir verið eftirsóttur leikfélagi barnanna í frímínútum og þá sögu hef ég heyrt, að þú hafir sjálfur skemmt þér svo vel, að eitt sinn hafi þér gleymzt að gæta þinnar ósveigjanlegu stundvísi. Það var víst í það eina skipti þessi ár í Hafnarfirði, að þú komst of seint með krakkana í tíma. Viltu gangast við þessu, Bjarni?
Ég verð að gera það. Ég lék mér oftast við börnin í frímínútum. Þau voru ekki vel ánægð, ef ég var ekki með þeim í risaleiknum. Það er satt, að mér þótti sjálfum mjög gaman að leika mér með börnunum. Stundvísi reyndi ég að rækja vel. Ég hef líka heyrt þetta sama og þú og held ég jafnvel að það sé satt. Ég hef alla mína ævi haft andstyggð á óstundvísi að nauðsynjalausu.
Þá var ekki minna látið af kröfu þinni um hreinlæti og snyrtimennsku í umgengni. Sagt var, að krakkarnir yrðu öll að sýna, þegar þú kæmir inn í kennslustofu, að þau væru hrein og vel hirt. Er það líka satt?
Já það er nú rétt. Við gerðum þetta ekki einungis sem hreinlætisráðstöfun heldur sem skemmtun. Börnin lögðu hendur á skólabroðið, þegar tími hófst svo auðvelt væri fyrir kennarann að sjá, hvort þau væru hrein. Þetta var föst venja. Ekkert orð var talað. Börnin sáu strax sjálf, hvort þau voru hrein á höndunum eða ekki og skutust þá hljóðalaust fram og þvoðu sér, ef þess var talin þörf. Þetta þótti börnunum sjálfsagt og olli engum leiðindum.
Þá fór ekki minna orð af strangleika þínum við fimleikakennsluna.
Ég held, að engir hafi fundið til þess. Ég kenndi öllum mínum nemendum vissar reglur, sem ekki mátti víkja frá. Ég lærði þær í skólum í Danmörku og reglurnar voru mér mjög að skapi.
Hverjar voru þær?
Ég vil segja þér það með ánægju því ég tel þær í góðu gildi enn í dag.
Þegar gott var veður röðuðu börnin sér fyrir utan dyrnar, þar til hringt var og opnað. Síðan gengu þau prúðmannlega inn í anddyrið, tóku strax af sér skóna og röðuðu þeim vendilega út við veggina og jafnóðum fóru þau inn í fatastofnuna. Þar höfðu þau fataskipti, sem áttu fimleikaföt, en fjöldi barna áttu þau ekki og léttu bara af sér fötum en gátu ekki haft fataskipti né sett upp skó. Þau voru þá á sokkaleistunum og um það þýddi ekkert að fást. Börnin áttu ekkert annað og það varð að gera það bezta úr því, sem fyrir var. Í þá daga lét ég þau sjaldan fara inn í salinn fyrr en öll voru tilbúin og þá gengu þau í röðum en þegar vont veður var og ég varð að hleypa þeim inn fyrir tímann jafnóðum og þau komu, lofaði ég þeim að leika sér. Þetta að raða útiskóm og hengja vel upp fötin sín var með öllu órjúfanleg regla og í því liggur ef til vill það, sem sagt var um mig, að ég væri strangur. Þetta var auðvelt eftir að fimleikahúsið kom, en fyrstu árin mín kenndi ég í Góðtemplarahúsinu. Þar var ekkert vatn né salerni, engin áhöld en sæmilegt anddyri. Þá kenndi ég þarna nemendum barnaskólans, Flensborgarskólans, íþróttafélagi og „old boys“.
Ég byrjaði með einn hestræfil, þann sama, sem Helgi Valtýsson, hinn þjóðkunni maður, notaði, þegar ég var nemandi hans í Flensborg. En síðar bættist við nýr hestur, hástökkstækin og dýna, en þá var líka fulltalið.
Ég minnist þess, að þegar ég var í Miðbæjarbarnaskólanum í Reykjavík voru svipaðar reglur í gildi, en skyldi það svo vera lengur?
Ég held það. Íþróttakennarar fá nú góða menntun og hafa reynzt ágætlega en hins vegar fer það náttúrulega alltaf eftir einstaklingum. Ég verð nú að játa það, að ég hef litið stundum inn í anddyri leikfimihúsa. Mér hefur nú satt að segja ekki fundizt allir rækta svo vel sem ég vildi þessar reglur um útiskófatnað og þessháttar.
Skólastjórinn
Mörg barnanna voru svöng og enn fleiri voru illa klædd í kuldum og úrkomu. Allmarga drengi vantaði gersamlega skjólföt. Ef drengir blotnuðu illa, gátu þeir ekki komið í skólann daginn eftir vegna fataleysis. Þegar börn vantaði í skólann og engin boð komu um ástæðuna, fór ég heim til þeirra. Ég gat jafnan lítið gert, en reyndi að hughreysta foreldrana og talaði svo við ráðamenn um úrbætur
Hver var aðdragandi þess, að þú varst gerður að skólastjóra í Hafnarfirði og hver þótti þér helztu vandamálin, sem þú áttir við að glíma?
Fyrirrennari minn var Þórður Guðnason, frændi minn (innskot GÞ: þeir voru bræðrasynir). Hann var sjúkur og ég gegndi störfum fyrir hann meðan nokkur von var, að hann fengi bata, en hann andaðist.
Þannig þróaðist nú þetta, að ég varð skólastjóri en það get ég sagt þér, að fátæktin var mitt lang erfiðasta, viðkvæmasta og um leið jafnvel mitt mesta áhyggju og áhugaefni, þótt ef til vill sé einkennilegt að orða þetta svona. Mörg barnanna voru svöng og enn fleiri voru illa klædd í kuldum og úrkomu. Allmarga drengi vantaði gersamlega skjólföt. Ef drengir blotnuðu illa, gátu þeir ekki komið í skólann daginn eftir vegna fataleysis. Þegar börn vantaði í skólann og engin boð komu um ástæðuna, fór ég heim til þeirra. Ég gat jafnan lítið gert, en reyndi að hughreysta foreldrana og talaði svo við ráðamenn um úrbætur. Sumir drengir sóttu mjög á hafskipabryggjuna til þess að fá sér vinnu, einkum í kolum. Þetta máttu skóladrengir ekki vegna skólans. Spor mín voru stundum þung, þegar ég sótti þá og vissi, að heimili þeirra vantaði aura fyrir mat. Ég leitaðist við að laða fram aðstoð við þetta fólk, þannig að bætt væri úr þessum vandræðum, að því leyti vakti þetta áhuga minn.
Nokkur ár, eftir að ég kom í Hafnarfjörð, greiddu kaupmenn verkafólki kaupið í vörum úr eigin verzlun. Þá var ekkert verðlagseftirlit, en eftir að verkalýðssamtökin komu til sögunnar gerbreyttust margskonar venjur til betra horfs, bæði hvað snerti sjálfstraust alþýðufólks og efnahag heimilanna. Þá voru í gildi landslög um réttindamissi, ef heimilisfeður þágu af sveit. Þessu kynntist ég vel, því ég átti góða vini í bænum, sem voru ofurseldir þessu bágborna lagaákvæði.
Nokkru síðar öðlaðist ég aðstöðu til þátttöku í að breyta fátækralögum eðlilega til meiri mannúðar og víðsýni.
Að Laugarvatni
Ástúðin var svo mikil eftir vetrarstarfið fyrsta, að það er ekki hægt að lýsa því, aðeins lifa það. Við byggðum um veturinn fjölda herbergja smátt og smátt, nemendurnir og við kennararnir, og sköpuðum stöðugt eitthvað nýtt.
Starf þitt í Hafnarfirði, Bjarni, færði þig svo nærri fólkinu, að þú varst þeirra vinur sem það treysti til fulls, og svo mjög varst þú þeirra átrúnaðargoð, að enn lifir í þessum glæðum með eldri Hafnfirðingum. En hvað olli því þá, að þú fluttir frá þessu fólki og hazlaðir þér nýjan völl?
Ég get sagt þér það. Ég átti vini og ég var orðinn þá dálítið pólitískur, hafði kynnst bæði Jónasi Jónssyni og Tryggva Þórhallssyni og gegnum kynningu við þá og lestur, hreifst ég af samvinnustarfinu og auðsæjum árangri þess. Þetta voru vinir mínir og Jónas kom til mín og tilkynnti mér, að það væri ekki aðeins hans vilji heldur og forsætisráðherrans, Tryggva Þórhallssonar, að ég gerðist skólastjóri á Laugarvatni.
En skólinn var nú þá aðeins nýstofnaður og í sjálfu sér ekki að neinu að hverfa. Í Hafnarfirði leið mér ákaflega vel. Ég var eins og þú sagðir vel séður hjá Hafnfirðingum og mér fannst á margan hátt betra að vera þar en í Reykjavík og sá framtíð mína þar bjarta og glæsilega, svo að ég segi nú alveg eins og er, en samt er þetta sambland af hégómaskap sjálfsagt, því að vilja sækja hærra. Það þótti meira í það varið að vera skólastjóri við héraðsskóla heldur en við barnaskóla, og fyrir áeggjan þessara manna lét ég tilleiðast að fara að Laugarvatni.
Og þar hefur þú hafið nýtt landnám, bæði í skólamálum og í orðsins fyllstu merkingu, en saga þín á Laugarvatni er svo þjóðkunn, að við þurfum ekki að fara lengra út í hana frekar en þú sjálfur óskar, en mér leikur forvitni að spyrja þig: Hefur þú aldrei hugleitt hver hefði orðið framtíðin, ef þú hefðir verið um kyrrt í Hafnarfirði, og hver hefðu þá orðið fleiri verkefni þín en skólastjórn? Því spyr ég, að vitanlega var starf þitt fyrstu árin þar ekkert annað en skóli að pólitísku starfi til umbóta í atvinnu- og menningarmálum fólksins í kaupstöðum og jafnframt þjóðinnar í heild.
Já, Matthías, ég þakka þér fyrir þessa umsögn, en ég hef nú ekki leitt hugann að því eiginlega, hver hefði orðið framtíð mín, ef ég hefði orðið kyrr í Hafnarfirði. Ég átti alltaf nægileg umhugsunarefni, hvort þau voru gildismikil eða ekki, það er annað mál. Þessvegna hugsa slíkir menn ekki svo mikið um fortíðina, fremur um samtíðina og framtíðina.
Hvað mætti þér svo í nýja starfinu?
Þegar ég kom að Laugarvatni var þar framsóknarhugur en óárennilegt mjög að öðru leyti. Þar voru að vísu komnar 6 burstir, en engin vistarvera, hvorki fyrir kennara né nemendur. Enginn maður myndi ganga að slíku starfi við þann aðbúnað nú, en auðvitað var kapp mitt það mikið og ég svo vanur ýmsu, að ég íhugaði þess vegna ekki svo mjög erfiðleikana, sem biðu mín, þótt skynsamlegra hefði verið að gera það.
En það get ég sagt þér án þess að fara nánar út í þetta, að eftir fyrsta veturinn, um vorið 1930, þá skildum við öll, nemendur og kennarar, grátandi. Ástúðin var svo mikil eftir vetrarstarfið fyrsta, að það er ekki hægt að lýsa því, aðeins lifa það. Við byggðum um veturinn fjölda herbergja smátt og smátt, nemendurnir og við kennararnir, og sköpuðum stöðugt eitthvað nýtt. Fyrirheitið var þetta: Nú fáið þið það herbergi, sem næst verður tilbúið og nú verður þessi kennslustofa tilbúin og dúklögð, o.s.frv. Við hjuggum upp úr gólfinu steypuklessurnar og dúklögðum smátt og smátt. Við byrjuðum með um 30 manna svefnhús og byggðum okkur síðan skóla og vistarverur, 84 nemendur og fimm kennarar.
Þetta samstarf leiddi okkur saman í eina ástúðlega heild. Sumir kennararnir, sem höfðu gaman af fólkinu og þessu braski, sögðu sín á milli: „Nú, það er ekki hægt að vera við þetta, ef við þurfum að gráta á hverju vori, þegar við skiljumst.“ En með réttu eða röngu breyttist þetta nú fljótt og ég verð nú að segja, að ég endaði nú mitt starf þarna svo að einstakir nemendur gleymdu að kveðja mig, án þess, að í því fælist nokkur óvinátta, en ætti að skýra breytt viðhorf.
Stjórnmála- og alþingismaðurinn
Kosningabarátta er skemmtilegasta vinna, sem ég hef gert og get hugsað mér. Ég var sólginn í að tala við fólk og kynnast högum þess og sjónarmiðum
Bjarni, svo við víkum okkur nú að pólitíkinni, segðu mér, hvað gat eiginlega komið þér til að bæta stjórnmálavafstri ofan á allar þínar aðrar annir?
Það er von, að þú spyrjir, en sagan er þessi. Frá 1929 til 1934 helgaði ég mig óskiptum störfum á Laugarvatni en ég var í sannleika sagt orðinn ótrúlega þreyttur og þurfti einhverja tilbreytni. Ég hafði alltaf áhuga á landsmálum og öllum félagsmálum og nú fóru vinir mínir, Jónas og fleiri, að brydda upp á því, hvort ég væri ekki fáanlegur í framboð. Ég hugleiddi þetta og komst að þeirri niðurstöðu, að ég myndi hafa gott af nýju viðfangsefni og ef til vill gæti ég einnig látið eitthvað gott af mér leiða. Um leið vaknaði bæði metnaður og kapp að skipta mér af stjórnmálum. Þarf ekki að segja þá sögu mörgum orðum. Ég varð þingmaður Árnesinga.
Kosningabarátta er skemmtilegasta vinna, sem ég hef gert og get hugsað mér. Ég var sólginn í að tala við fólk og kynnast högum þess og sjónarmiðum, enda notaði ég mér óspart þessi fágætu tækifæri, þegar ég var í framboði, einkum þá á Snæfellsnesi, þar sem ég þekkti engan og var ókunnugur héraðinu og fólkinu.
Þingmennskan var mér mjög að skapi og eitt af því skemmtilegasta, sem ég hef lifað. Mig langaði að vera lengur á þingi, en kjördæmabreytingin um hlutfallskosningu í tvímenningskjördæmum kom í veg fyrir það, og síðar ungir framsóknarmenn í Árnessýslu. Ég bað um eitt kjörtímabil, eftir að Jörundur hætti, en þeir ungu voru orðnir leiðir á mér. Ég erfi það ekki. Mér þykir vænt um þessa menn.
Bóndinn
Hér var byggt fjós, sem var nýjung að gerð, hjarðfjós svokallað. Það eru til menn, sem þola ekki nýungar. Þær fara í taugarnar á þeim og vanlíðan sú brýzt út í getsökum, ónotum og jafnvel rógi. Því miður kemst ég ekki hjá að segja, að þetta hafi bitnað á mér, en hér koma við bæði einstakir menn, og því verr MBF, en við skulum ekki ræða þetta í Þjóðólfi, til þess mun ég nota annan vettvang síðar.
Já, já, og ég get bætt því við, Bjarni, þó þér þyki það ótrúlegt, að þeim þykir einnig vænt um þig, dást að þér fyrir marga hluti og meta þig mikils. En víkjum nú enn okkar kvæði í kross. Alþjóð veit, að þrátt fyrir allar þínar annir hefur eitt starf sjaldan horfið þér úr höndum heldur fylgt þér með litlum hvíldum allt frá æsku, en það er starf bóndans. Ég minnist þess, að jafnvel meðan stóð á dvöl þinni í Hafnarfirði áttir þú bújörð. Segðu mér eitthvað um þetta.
Þórður Edilonsson, læknir, og ég keyptum saman fjárjörð í nágrenni Hafnarfjarðar, Strauminn. Það er alltof langt mál að tala um en það ásótti mig svo mjög að fást við búskap. Ég ætla að segja þér aðeins eina grobbsögu frá þeirri tíð. Mér þótti alltaf mest varið í fallegar hámjólka kýr og ég átti 14 kýr í Straumi. Það er svolítið sérkennilegt því þar er mjög léleg grasnyt. En til stuðnings því, að vit hafi verið í þessu starfi, vil ég segja þér frá því, að til mín kom Þorvaldur Jónsson bóndi í Hjarðarholti í Stafholtstungum. Hann er landskunnur bóndi vegna fyrirmyndar á mörgum sviðum landbúnaðar og hann sagði, að hann hefði aldrei séð 14 kýr í einu fjósi jafn glæsilegar. Margar voru þá nýbornar og allar mjólkandi. Þessu gat ég ekki gleymt.
Kýrnar hafði ég sjálfur valið til og frá. Hér á Laugarvatni var rekið skólabú frá 1935 til 1953. Magnús Kristjánsson, nú bóndi í Útey, var lengst af ráðsmaður þá, ráðdeildarsamur maður. Þá var mér leigð jörðin ævilangt. Síðan hefur margt skeð í búskap mínum.
Hvað áttu helzt við með því?
Hér var byggt fjós, sem var nýjung að gerð, hjarðfjós svokallað.
Það eru til menn, sem þola ekki nýungar. Þær fara í taugarnar á þeim og vanlíðan sú brýzt út í getsökum, ónotum og jafnvel rógi. Því miður kemst ég ekki hjá að segja, að þetta hafi bitnað á mér, en hér koma við bæði einstakir menn og því verr MBF, en við skulum ekki ræða þetta í Þjóðólfi, til þess mun ég nota annan vettvang síðar.
Varla hefur það verið af nýjungagirni einni, Bjarni, að þú og Ingvar í Þrándarholti, byggðuð hjarðfjós. Hvað höfðu þið fyrir ykkur í því?
Nei, við þekktum bæði gömlu, loftfúlu og vondu fjósin og einnig ný dýr steinbásafjós, sum með járnbindingum, við vissum um heilsuleysi kúnna, bógsig og fótaveiki. Við höfðum lesið um það í búfræðiritum Norðurlandanna, að búfróðir og framsýnir menn voru að þreifa fyrir sér eftir nýrri fjósgerð, þar sem kýrnar gengu lausar á rimlagólfi eða hálmbing. Meira að segja hafði ég skotizt til Finnlands og séð með eigin augum síðarnefndu gerðina og rætt við menn um þetta ágæta málefni. Aðalatriðið var þó, að Þórir Baldvinsson, húsameistari, hafði fylgst með þessu öllu erlendis, hann teiknaði og var okkar ráðgjafi. Þó við, þessir menn, eigum frumkvæði í þessu vitum við vel að ýmsu þarf að breyta og bæta. Hjarðfjósin breiðast nú óðum út bæði hér og erlendnis. Stefan mun reynast rétt og það er mergurinn málsins. Dýraverndarfélag Íslands gerði eitt sinn kröfu til Búnaðarfélags Íslands, að það bannaði bændum að reisa hjarðfjós.
Hverjir eru kostirnir?
Fyrst og fremst heilbrigði kúnna, án efa vegna góðs lofts og hreyfingarfrelsis. Við höfum enga kú misst s.l. sjö ár og dýralæknir ekki sóttur í fjögur ár. Fjósið er 10 ára. Kýrnar voru fyrst 50, en við höfum smá fækkað þeim í 30. Í fimm ár samfleytt höfum við framleitt eingöngu 1.fl. mjólk, sum þessara ára fór magnið þó upp í rúmlega 100 þús. l.
Eruð þið feðgarnir saman um búið?
Já, Þorkell hefir af því veg og vanda, hann á féð og flest hrossin, hann lánar skemmtiferðafólki hesta á sumrin, við eigum áhöldin saman, en ég ber ábyrgð á kúnum.
Hestamaðurinn
Í sambandi við hestinn vil ég einnig taka fram, að ég er að því leyti sérstakur hestamaður, að ég er kappsfullur og hef ekki verulega unun af öðrum hestum en afrekshestum. Þar er ekki hægt að segja um fjöldann allan af hestamönnum og ég vil nú líka halda því fram, að sú fullkomnasta hestamennska er fólgin í því, að hestur og maður séu samstillt heild, glæsileg á velli og ferð. Prúður hestur með fallegri ásetu er náttúrulega aðal keppikeflið.
Bjarni, meðan við erum að tala um búskap, skulum við víkja að hestamennskunni. Þú ert landskunnur hestamaður, og segðu mér eitthvað frá starfi þínu á því sviði.
Það er þá skemmst frá að segja, að Landssamband hestamannafélaga fól mér að ferðast um landið og hafa uppi áróður fyrir íslenzka hestinum. Ég gerði mér nú þetta til gamans og hef ferðast í tvö ár og ég kom í tuttugu skóla og tuttugu til þrjátíu hestamannafélög og flutti erindi og sýndi kvikmynd frá landsmótinu í Skógarhólum 1958 og þessir aðilar, ég vil segja kannske helzt skólarnir, hafa umvafið mig með ástúð og gleði og ég get sagt þér það, Matthías, að hesturinn virðist allsstaðar sérstaklega vinsælt viðfangsefni.
Í sambandi við hestinn vil ég einnig taka fram, að ég er að því leyti sérstakur hestamaður, að ég er kappsfullur og hef ekki verulega unun af öðrum hestum en afrekshestum. Þar er ekki hægt að segja um fjöldann allan af hestamönnum og ég vil nú líka halda því fram, að sú fullkomnasta hestamennska er fólgin í því, að hestur og maður séu samstillt heild, glæsileg á velli og ferð. Prúður hestur með fallegri ásetu er náttúrulega aðal keppikeflið.
Þú talar um að þér hafi verið tekið með mikilli vinsemd á þessum ferðum þínum, á það ekki við um alla þína samtíðarmenn?
Jú, það má nú heita. Ekki er þó örgrannt að útaf því hafi borið í skrifum ráðamanna við mig síðan ég varð sjötugur og valdalaus, en þetta á við um svo undur fáa menn að það skiptir mig litlu máli. Ég hefi meiri áhugaverkefni en ég kemst yfir að dunda við, fjölskylda mín er unaðsleg, þar á meðal fjöldi barna, tryggð og vinsemd nemenda minna og aðstandenda þeirra er takmarkalaus, að ég er sæll, þó ég sé ekki aðdáandi ellinnar.
Ég ætla ekki að lengja mál mitt með því að rifja upp þann mikla heiður, sem fjöldi vina hafa sýnt mér á langri ævi, en má ég ekki sýna þér bréf sem ég fékk í gær, það getur þá verið sýnishorn óteljandi bréfa, sem mér hafa borizt.
Þetta bréf er skrifað af 42 ára heimilisföður, sem var í Laugarvatnsskóla árin 1934-’36.
Þetta er fallegt bréf Bjarni, þú leyfir mér að birta kafla úr því, þennan:
„ … því oftar en þig grunar vermum við huga okkar við ljúfar minningar frá þeim árum, sem þú stjórnaðir því stóra ágæta heimili með sóma og krafðist þess sama af heimilisfólkinu. Og í sálum þessa fólks kveikir þú það ljós, sem allir reyndu að láta bera birtu á land sitt og þjóð eftir því sem hver og einn hafði hæfileika til, ljós drengskapar og kærleika“
Meðan við erum að tala um ástúðina, vil ég koma að atriði, sem þú hefur vendilega þagað um fram að þessu. Hvað segir þú mér af kynnum þínum af konum?
Ég vona að ég hafi kunnað að meta góðar konur að verðleikum. Þú veizt að ég er tvíkvæntur, fyrri kona mín var Þorbjörg Þorkelsdóttir trésmiðs, Hreinssonar frá Hjálmholti. Við áttum tvö börn, Þorkel og Védísi. Hann er hrossaræktarráðunautur, svo sem allir vita, giftur Ragnheiði Ester Guðmundsdóttur, hún er Húnvetningur, þau eiga sjö börn, tvö þau elztu njóta þegar góðs af menntaskólanum á staðnum. Védís, fimleikakennari, er búsett á Húsavík, gift Vilhjálmi Pálssyni, kennara, þau eiga tvær ungar dætur.
Síðari kona mín er Anna Jónsdóttir, Jónatanssonar alþingismanns.
Allir, sem þekkja mínar konur, vita að þær voru mjög skemmtilegar og vel gefnar ungar stúlkur og reyndust síðar gæddar góðum hæfileikum sem húsmæður og mátti þar ekki milli sjá. Tel ég nú spurningu þinni fullsvarað, Matthías.
Bjarni, bæði þú og aðrir munu telja þig vera mikinn hestamann. Þú kannast við máltæki sem segir, að miklir hestamenn séu jafnframt miklir kvennamenn. Er þetta grobb hestamanna eða álítur þú þetta vera sannleikanum samkvæmt?
Þetta er nú ljóta spurningin! Ég skal játa, að ég hef aldrei leitt hugann að þessu „slagorði“ ef ég mætti kalla það svo. Ennú, þegar þú spyrð, kemur mér í huga, að í þessu kunni að leynast gömul reynsla. Góður hestamaður þarf að hafa sérstaka lyndiskosti til að bera. Hann þarf að vera kjarkmikill, áhugasamur, laginn og þolinmóður. Getur þú ekki verið sammála mér, að þetta séu einmitt þeir kostir, sem góðar konur kunna vel að meta í fari karlmanna. Ertu ángæður með þetta svar?
Alþingismaðurinn og ævistarfið
Mér þykir vænst um og mest varið í þátttöku mína í stofnun Stéttarsambands bænda og starfemi þess í Bændahöllinni, og í öðru lagi stofnun Menntaskólans á Laugarvatni.
Ég held við látum það duga. En víkjum nú að alvarlegri efnum. Þú hefur getið um kynni þín af fátækt, bæði þinni eigin og þinna skjólstæðinga, og ekki mun vera ofmælt, að fátæktin hafi verið fylgikona Íslendinga um aldaraðir. Hvernig þótti þér skiptin við þá konu í störfum Alþingis?
Þetta er rétt hjá þér, Matthías. Við höfum mátt glíma við þá kerlingu svo lengi, Íslendingar, að við ættum ekki að gleyma henni alveg strax. Alþingismenn höfðu ekki úr miklu að spila, þegar ég kom á þing. Tekjur ríkissjóðs voru þá mig minnir um 10 milljónir króna og hækkuðu þessi 8 ár, sem ég var á þingi, upp í 18,5 milljónir króna.
Manstu um hvað þín fyrsta ræða á Alþingi fjallaði og hvert var þitt fyrsta mál?
Já, ég man það. Við Jörundur Brynjólfsson fluttum frumvarp um eignarrétt á jarðhita í landinu. Ég var fyrri flutningsmaður. Aðdáendur eignarréttar brugðust styggir við og þeim tókst að vængstífa svo frumvarpið, að það sem samþykkt var, var þýðingarlaust. Ég fæ ef til vill tækifæri til að rifja það mál upp síðar.
Bjarni, þetta er nú orðið æðilangt samtal hjá okkur og ekki efast ég um, að við gætum skrifað heila samtalsbók um reynslu þína, áhugamál og hugsjónir, en einhverntíma verðum við að setja punkt, áður en svo langt er komið, og nú ætla ég að lokum að spyrja þig einnar spurningar: þegar þú lítur yfir farinn veg, hvert er þá það mál, sem þú telur núna, að þér þyki vænst um?
Ég held nú og er raunar alveg viss um, að taki ég undan almennt starf mitt á Laugarvatni, þá get ég skilgreint svar mitt alveg til fulls. Mér þykir vænst um og mest varið í þátttöku mína í stofnun Stéttarsambands bænda og starfemi þess í Bændahöllinni, og í öðru lagi stofnun Menntaskólans á Laugarvatni.
Um menntaskólann er annars það að segja, að hann er í mikilli kreppu vegna skorts á húsum en ég vona, að hann fái bættan húsakost svo hann eigi sína glæsilegu framtíð, sérstaklega fyrir æskulýð sveitanna.
Matthías I. 1964. Þjóðólfur, 5. desember.