Ástæðan til þess, að ég fór að vinna að því, að hér færi fram kennsla í námsgreinum menntaskóla, var meðal annars sú, að ég hefi svo oft kynnst fluggáfuðum ungmennum, sem áttu þess engan kost að læra undir stúdentspróf, þó að slíkt nám væri þeirra heitasta ósk. …
Auk þess hlýtur það að vera metnaðarmál sveitanna að þeirra æskulýður, í þessu sem öðru, njóti jafnréttis við jafnaldra sína í bæjum svo sem verða má. … Af þessu stafar það, að nú mun mjög lág hundraðstala sveitarfólks ganga langskólabrautina og verða embættismenn, hins vegar munu þess allmörg dæmi, að bændafjölskyldur taki sig upp og flytji búferlum til bæjanna einungis með það fyrir augum að auðvelda skólagöngu barna sinna.
Ýmsir telja það skaðlegt, að aðeins bæjarmenn verði embættismenn. Fortíðin sýnir það líka, að bændasynir hafa ekki staðið öðrum að baki í embættisrekstri né vísindastörfum.
(Úr minningakistu Bjarna Bjarnasonar)