Afi og amma áttu oft erfitt þegar þau voru börn …

Vinnan sem mér var ætluð var ekkert smáræði: Hreinsa fjós, smala kvíaám kvölds og morgna, færa kaffi á engjar, verja tún, auk óteljandi endalausra snúninga allan daginn, en þetta var eins og gerðist á bæjum.

Núlifandi menn, konur og karlar, sem fæddust fyrir síðustu aldamót, hafa frá mörgu að segja frá æskuárum sínum, sem miðaldra fólk veit lítið um og unglingar og börn enn minna. Sennilega er of lítið af því gert að fræða ungt fólk og börn um nánustu fortíð, þó að ekki væri lengra farið en til afa og ömmu. Unglingar myndu læra á því að meta allt það, sem nú er gert fyrir þá ef þeir fengju fræðslu um það, hvað afi og amma áttu oft erfitt þegar þau voru börn.

Það, sem mér er minnistæðast frá árunum fyrir aldamót er tvennt: Það er vinnan sem lögð var á börn og unglinga og hitt hvað oft var –þröngt í búi-. Í sambandi við vinnu barna man ég það að þegar þau voru orðin 5 ára og jafnvel fyrr hjálpuðu þau þá þegar ótrúlega mikið við snúninga og auðveld verk. T.d. var ég lánaður á næsta bæ, jarðskjálftasumarið 1896, þá á sjöunda ári. Vinnan sem mér var ætluð var ekkert smáræði: Hreinsa fjós, smala kvíaám kvölds og morgna, færa kaffi á engjar, verja tún auk óteljandi endalausra snúninga allan daginn, en þetta var eins og gerðist á bæjum.

… fyrir kom að eitthvað gekk úr lagi og fékk þá þessi ungi starfsmaður ákúrur fyrir, að hann hefði ekki tekið nógu vel eftir. Ef ofan fór og milliferðarmaður gat ekki látið upp urðu baggarnir að liggja og hesturinn að ganga laus þá ferðina …

Þá voru unglingar og börn látin fara á milli, þ.e. flytja heim hey af engjum. Væri lestin löng, t.d. 6-8 hesta lest, var venjan að láta lítinn krakka sitja milli bagganna á einum hestinum, en unglingur, drengur eða telpa, teymdu lestina og fengu þau venjulega þægan hest til reiðar. Væri engjavegur stuttur og borið á fáum hestum var algengt að sá krakki, sem á milli fór, sæti milli bagganna á fremsta hestinum. Þá var milliferðamaðurinn oft ekki hár í lofti því fremsti klárinn rataði götuna og skildi hvað átti að gera. Húsfreyjan (mamma) var þá oft ein heima og hún tók ofan af lestinni. Stálpuð börn skriðu undir baggana, réttu sig svo upp og fór þá upp af klakknum og heybagginn féll af hestinum.  

Þannig voru kennd öll möguleg ráð til þess að börin gætu bjargað sér sjálf og hjálpað fullorðna fólkinu við daglegt strit. Þegar barn sat ofanmilli átti það að líta eftir lestinni og gæta að hvort nokkuð væri að og segja þá til, t.d. ef hallaðist á eða ef hestur fór aftanúr o.fl. Þetta var hið mesta trúnaðarstarf og áhyggjuefni. Því fyrir kom að eitthvað gekk úr lagi og fékk þá þessi ungi starfsmaður ákúrur fyrir, að hann hefði ekki tekið nógu vel eftir. Ef ofan fór og milliferðarmaður gat ekki látið upp urðu baggarnir að liggja og hesturinn að ganga laus þá ferðina. Einnig þetta var áfall því pabba líkaði þetta illa.

Vanþakklæti og jafnvel ávítur urðu unglingar að þola eins og aðra þjáningu. Enda bognuðu sumir unglingar svo að þeir náðu sér aldrei …

Þannig voru áhyggjuefnin mörg og margskonar. Algengt var það, að börn voru að verki með fullorðna fólkinu og leyfðu þá ekki af litlum kröftum sínum og oft voru þau mjög þreytt og unglingar líka. Jafnvel þó að börnin væru að verki með fullorðna fólkinu, var það sjálfsögð regla, ef skepnur sáust til meins þegar komið var heim að bænum til að matast eða að kvöldi, voru þau send til að reka frá. Alltaf gátu þau bætt á sig snúningi.

Að ýmsu leyti hafði þessi mikla vinna, sem lögð var á börn og unglinga, þroskandi áhrif. Þau öðluðust seiglu og dugnað, einnig veitti þetta andlegan þroska, börnin urðu oft sjálf að ráða fram úr allskonar óvæntum vanda, sem falinn var bak við það, sem þeim var skipað að gera. Mótþrói þýddi ekki, áhyggjur voru því oft miklar. Metnaðurinn var í því fólginn að gefast ekki upp og reyna að vinna sér lofsorð: t.d. fyrir krafta, kjark, lagni eða útsjónarsemi. Vanþakklæti og jafnvel ávítur urðu unglingar að þola eins og aðra þjáningu. Enda bognuðu sumir unglingar svo að þeir náðu sér aldrei, aðrir stæltust við svona uppeldi.

Verst var að viðurværið var oft mjög lélegt, vinna unglinga um og eftir fermingu var hrein ofætlun og myndi ungt fólk vart trúa ef ég segði því nú nokkur dæmi um það hvers var stundum krafist af drengjum og telpum um fermingu fyrir 60 árum. Hitt atriðið sem ég nefndi er viðurværið. Við systkinin höfðum sæmilega sögu að segja í því efni, en það hafa ekki allir frá þeim tíma, sem ég tilnefndi.

Þetta sem ég minnist á er úr Austur-Landeyjahreppi í Rangárþingi. Bærinn minn var skammt frá Landeyjasandi. Þegar kom fram á útmánuði var víða orðið þröngt í búi. Lengst geymdist garðmaturinn og á flestum bæjum voru kýr …. allan veturinn. Treyst var á það að nýr fiskur fengist til búbætis og bjargar. Margir bændur áttu báta, sem þeir geymdu á sjávarkambinum. Faðir minn og bróðir hans voru nágrannar, þeir áttu sína fleytuna hvor, mig minnir sexæringa. Annar báturinn hét Björg, hinn Blíða.

Með endilöngum Landeyjasandi var og er oft óslitinn brimgarður svo færir vinnumenn og einnig oft bændur voru farnir i verið, einkum suður með sjó, fóru heimamenn að líta eftir því, hvort nokkursstaðar væri hlið sem kallað var, þ.e. hlið á brimgarðinum. Fyndust slík hlið voru bátarnir settir þangað og þaðan róið til fiskjar þegar leiði var, en það var kallað leiði ef hægt var að róa til fiskjar eða komast yfir Eyjasund til Vestmannaeyja í verzlunarerindum. Þessi hlið eða sund í brimgarðinum verða þannig til, að áll myndast og sinn hvoru megin við álinn myndast sandrif, sem aldan svo brotnar á. Þannig kom fyrir að liggja mátti við sama hliðið jafnvel vikum saman. Þegar þannig var að hægt var að komast gegnum brimgarðinn var oft sæmilegt í sjóinn fyrir utan. Mikið var í húfi að hægt væri að komast á sjó og afla.

Hver maður var svangur fyrir hverja málið og fæstir fengu fyllilega nægju sína þegar nærst var. Börn voru látin liggja í rúmum sínum þá daga sem minnst var um matbjörg á heimilinu að vetri til.

Minnist ég leikfélaga míns, sem ekki hafði fengið annað en mjólkudropa einn daginn, en þann dag var veifað sem kallaða var. Þegar formennirnir töldu líkindi til, eftir útliti, að sjóveður yrði næsta dag, settu þeir upp svokallaðar veifur, reist var langt þar til gert tré á háum stað. Um efri enda trésins var vafið dökkum dúk. Þessi veifa sást í kíki alla leið ofan úr Fljótshlíð. Bændur þaðan réru hjá föður mínum o.fl. formönnum. Samstundis og veifað var tóku þeir sig upp og komu um kvöldið til formanns eða í nágrenni hans, með nesti sitt og hey handa hestum sínum. Vel man ég hvað lyktin af heyinu úr Hlíðinni var sterk og góð. Hver maður varð að vera sjálfum sér nógur. Fáir gátu miðlað svo að um munaði.

Sjóveður var ágætt daginn eftir og um kvöldið komu feður okkar leikfélaganna með marga hesta klyfjaða af fiski. Fiskurinn var seilaður í fjörunni og seilin hengd á klakk, tvær seilar voru hengdar á hvern hest. Slíkir dagar voru miklir gæfu- og gleðidagar, allt í einu allsnægtir þó að búrin væru hálf tóm. En það voru okkur allsnægtir í þá daga að hafa nægan glænýjan fisk til matar. Allt, sem aflaðist var borðað. Ekki einungis fiskurinn sjálfur – bolur og haus – heldur einnig tálknin, hrogn, kúttmagi, lifur, sundmagi og jafnvel svilin voru hreinsuð, þurkuð, súrsuð og etin. Þá var mat ekki fleygt. Hvert fiskbein var sleikt og sogið ef nokkur fita var í því, hið sama gilti um kjötbein. Hver maður var svangur fyrir hverja málið og fæstir fengu fyllilega nægju sína þegar nærst var. Börn voru látin liggja í rúmum sínum þá daga sem minnst var um matbjörg á heimilinu að vetri til.

Tíu ára gamall sá ég þetta, það gleymist aldrei.

Eitt sinn var vinnumaður foreldra minna sendur í ferð, ég var látinn fara með honum. Við gistum á heimili þar sem hjónin voru ein með 14 börn, baðstofan var aðeins uppi hangandi. Húsfreyjan gekk með barn og lítill drengsnáði gekk við stokk. Félagi minn gaf litla drengnum brauðsneið með smjöri. Móðirin mændi á brauðið og gerði síðan tilraun til að brjóta smá bita af sneiðinni handa sér sjálfri, en litli, svangi drengurinn var ekki á því, fól allt í höndum sér og sleppti engu. Bæði liðu þau hræðilega af brauðskorti.

Þetta dæmi er eitt af hundruðum dæma um svipað efni frá þessum tímum. Tíu ára gamall sá ég þetta, það gleymist aldrei. Hver sem vill má lá okkur, sem þetta höfum séð og reynt þó við fyllumst gremju og andstyggð þegar við sjáum fólk ganga illa að mat sínum og fúlsa við bezta mat. Unglingar og fullorðnir ættu að vera svangir að minnsta kosti einu sinni hvern dag fyrir máltíð. Munum það að hóf er bezt í hverjum hlut.

Bændavikan, 1953 eða ´54,

Úr minningakistu Bjarna Bjarnasonar

Skildu eftir svar