Bjarni Bjarnason, Laugarvatni:
GUSTUR
Fljótt varð þess vart, að Gustur var óvenju ganglaginn. Skeiðhrifsurnar urðu strax tilþrifamiklar, enda var bæði hraði og teygja í spori svo mikil, að alveg óvenjulegt var um fola í fyrstu tamningu. Og þótt vekurðin lægi opin fyrir, var töltið dúnmjúkt og hreint …
Gustur minn verður 23 vetra í vor. Sextán ár hefir hann verið minn aðalreiðhestur. Enn er hann mikill gæðingur og afrekshestur, þó að ég, sem best hann þekki, finni ellimerki nokkur. Gustur hefir veitt mér margar ánægjustundir, en samtímis gerumst við nú báðir aldnir og fer vel á því, að við fylgjumst að. Löngum hefi ég gefið hestum auga á ferðum mínum. Þeim hestum, sem mér hefir litizt bezt á, hefi ég átt erfitt með að rýma úr huganum. Gusti ungum þó einna sízt allra hesta.
Folinn var mjög skapstór og ódæll og þó að árangur yrði rýr á báðum þessum mótum, gat engum hestamanni dulizt, að þarna var efni í gammvakran hest.
Vorið 1948 sá ég hann fyrst, þá var hann orðinn 6 vetra. Það vor var hann reyndur í folahlaupi á heimavelli, varð hann þriðji og hljóp á 21,5 sek. Þá var honum einnig riðið í hópsýningu. Mér gazt mjög vel að þessum fola. Síðar mun ég hafa haft orð á því við Jón Pálsson, dýralækni, og ef til vill fleiri. Eitt er víst, svo sem síðar kom fram, að Jón Pálsson gleymdi ekki samtali okkar um Gust. Ekki lét ég í ljós við Steinþór Gestsson það, sem mér bjó í brjósti.
Gustur var reyndur á skeiði árið eftir á landsmóti Þorgeirs í Gufunesi, og litlu síðar, það vor, á skeiðvelli Fáks. Folinn var mjög skapstór og ódæll og þó að árangur yrði rýr á báðum þessum mótum, gat engum hestamanni dulizt, að þarna var efni í gammvakran hest.
Enn leiddi ég hjá mér að tala við Steinþór um Gust. Þó vakti hann óskipta athygli mína, svo að ekki sé meira sagt. Hvort tveggja var, að mér fannst frekja að fala til kaups svo glæsilegan hest af góðum og þekktum hestamanni og hitt, að fjármunir þeir, sem svona hestur myndi kosta, munu ekki hafa legið lausir hjá mér. Ég varð því að láta mér nægja að hugsa um þennan unga gæðing og muna eftir honum.
Árið 1949 var Gustur í gæðingakeppni á heimamóti og hlaut þá heiðursverðlaun, Hreppasvipuna. Sem dómara hefir mér aldrei fundizt vafalausara, hvaða hesti bæri heiðursverðlaun í gæðingakeppni. Þá kom ég á bak Gusti fyrsta sinni.
Nú segir Steinþór frá:
Fljótt hlýddi hann taum og hljóp með manni eða hesti létt og lipurt. Óþæðgð sýndi hann aldrei, var hiklaus og kjarkmikill
„Gustur fæddist mér vorið 1942. Faðir hans var Skuggi frá Bjarnanesi, en móðir Brúnka frá Vestra-Geldingaholti, en hana keypti ég 5 vetra gamla. Hún var vökur í bezta lagi og viljagóð. Brúnka var undan Jarp á Miðhúsum, en hann var sonur Nasa frá Skarði og móðurbróðir Roða frá Hrafnkelsstöðum, því móðir Jarps var Jörp á Miðhúsum. – Móðir Brúnku var Stjarna í Vestra-Geldingaholti, dóttir Nasa frá Skarði.
Ekki er mér nú í minni lengur, hver var móðir Stjörnu. En sennilega hefur hrossakyn Kjartans heitins Ólafssonar í Vestra-Geldingaholti verið af einum og sama stofni, en þaðan voru runnir á þessum árum gæðingar, sem minnisstæðir eru þeim, er þekktu.
Þegar Gustur var á 5. vetri, tók ég hann á góða gjöf og tók að temja hann. Fljótt hlýddi hann taum og hljóp með manni eða hesti létt og lipurt. Óþæðgð sýndi hann aldrei, var hiklaus og kjarkmikill. Sá ljóður var á ráði hans, að fyrsta mánuðinn, sem ég reið honum, vildi hann ekki reisa sig, þegar ég var seztur í hnakkinn, þótt hann annars stæði vel reistur. Ég gætti þess þó, að þreyta hann ekki með óþarfa afskiptasemi. Þegar svo hafði gengið til við nærri daglegar æfingar í heilan mánuð, þóttist ég sjá, að nú yrði hann að breyta háttum sínum. Ég gaf honum því til kynna, hvers ég óskaði um hátterni hans undir reiðveri. Gustur hlýddi. Hiklaust og æðrulaust og frá þeim degi mátti segja, að ekki þyrfti að kenna honum neitt.
Eftir þetta tók hann aldrei á taum, en vildi hann hraðar áfram en mér þótti hæfilegt, hætti honum til að reisa sig of hátt og máttu ókunnir gæta sín að renna ekki aftur af honum, þegar gustaði af honum.
Fljótt varð þess vart, að Gustur var óvenju ganglaginn. Skeiðhrifsurnar urðu strax tilþrifamiklar, enda var bæði hraði og teygja í spori svo mikil, að alveg óvenjulegt var um fola í fyrstu tamningu. Og þótt vekurðin lægi opin fyrir, var töltið dúnmjúkt og hreint.
Þótt ég ætti hann aðeins ungan fola, undraðist ég oft þá orku, sem í honum bjó og þá ótrúlegu spyrnu er hann hafði, þegar hann þreif til.
Hann er mér ógleymanlegur.“
Mig furðar ekki, þó að Steinþóri verði einatt hugsað til Gusts. Kostir hans verða minnisstæðir hverjum manni, sem hefir notið þeirra og þá ekki sízt sjálfum uppalandanum. Þó ég léti í ljós við kunningja mína aðdáun á þessum hesti, óraði mig ekki fyrir því, að ég myndi eignast hann að gjöf. Samt gerðist þetta 23. okt. 1949 svo sem síðar verður vikið að.
II
Eftir nokkurt góðlátlegt amstur lyftir hann höfðinu, hvílir annan afturfótinn, og þar með gefur hann í skyn, að nú skuli hann vera rólegur svolitla stund
Gustur er dökkjarpur, aðeins ljósari um munninn, í enninu er lítil og dauf stjarna. Hann er mjög fax- og taglprúður, faxið skiptist í miðju frá hnakka og aftur á herðakamb. Mér finnst faxið svo fallegt, villt og ósnert, að ég snurfusa það sjaldan. Hryggurinn er í lengra lagi í hlutfalli við lendina, en hún er furðu jafnbreið. Hryggurinn er sérlega vel vöðvafylltur. Háls, brjóst, bógar og framfætur, allt er þetta gætt mjúku samræmi fögru. Kviðlínan er furðu bein og fögur, þetta sézt á myndinni er fylgir, en hún er tekin að hausti og Gustur næstum sumarstaðinn. Kjúkur eru fremur stuttar með hóflegri sveigju. Hækilbeygjur benda ljóslega til skeiðhæfni, hófar eru gallalausir. Gustur er 55 þumlungar á herðakamb. Hvað útlit snertir að öðru leyti vísa ég til myndanna, af þeim má nokkuð ráða.
Hesturinn er svipmikill, enda tiginborinn, þar eð báðir koma hér til, Skarðs-Nasi og Skuggi frá Bjarnanesi, ásamt fallegri móður. Með mann á baki er ekki auðvelt að taka mynd af Gusti, taugakerfi hans er bæði fíngert og viðkvæmt, hann er mjög tregur til að standa alveg kyrr, heldur tifar hann létt og fimlega á smá bletti, hringar þá makkann mikið, bítur mélin með blæstri og jafnvel rymur í honum. Eftir nokkurt góðlátlegt amstur lyftir hann höfðinu, hvílir annan afturfótinn, og þar með gefur hann í skyn, að nú skuli hann vera rólegur svolitla stund, en þó aðeins, að þétt sé haldið í taumana. Þetta á ekkert skylt við „tiktúrur“, heldur er hesturinn svona örgeðja að eðlisfari og fellur kyrrstaða illa.
Ég tel fyrsta kost hvers reiðhests, að hann sé þýður, þó er sá hæfileiki alls ekki metinn svo sem skyldi. Etir langa ævi og allviðburðaríka í hestamennsku, hefi ég aldrei setið mýkri hest en Gust, og óskeikulli í gangi
Í reið er Gustur sæmilega reistur, þó sækir hann í meira lagi fram með nefið, sem stafar af því, að kjálkarýmið er í þrengar lagi, hæfileikinn til að hringa makkann er þó í bezta lagi, fái hann að lækka höfuðburðinn, þá rjálar hann við mélin, hringar makkann mikið og eru þeir hættir Gusti mjög að skapi. Þegar á allt er litið fer hann sómasamlega undir manni, líki honum beizlið og taumhaldið. Ég játa, að mér hefir ekki tekizt að halda í horfinu þeirri miklu höfuðlyftingu, sem Steinþór talar um hér að framan, og mér hefir alltaf fundizt Gustur að þessu leyti nokkuð vandsetinn, svo vel færi.
Ég get því vel skilið, að Steinþór hafi orðið fyrir vonbrigðum í Skógarhólum í gæðingakeppninni 1958 þegar Gustur, að skoðun dómnefndar, reyndist ekki jafnoki hesta, sem ýmist höfðu lýti í reið eða voru fákunnandi í gangsnilli. Skógarhólamyndin sýnir þetta á mjög ótvíræðan hátt. Steinþór var meðal þeirra manna, sem völdu Gust til keppninnar fyrir hestamannafélagið „Smári“, og ég veit, að hann bæði vonaði og bjóst við, að Gustur myndi reynast vandanum vaxinn. Umsögn dómnefndar: „Skörulegur reiðhestur mjög vel vakur.“
Við þessa umsögn þurfti að bæta: – Dúnmjúkur á öllum gangi. – Ég tel fyrsta kost hvers reiðhests, að hann sé þýður, þó er sá hæfileiki alls ekki metinn svo sem skyldi.
Etir langa ævi og allviðburðaríka í hestamennsku, hefi ég aldrei setið mýkri hest en Gust, og óskeikulli í gangi.
Teygir hann þá fram höfuðið og fikrar því milli ólanna. Gusti þykir gaman að láta tygja sig, og oftast nær er er hann kátur í reið …
Gustur er notalega viljugur og engu viljugri í samreið en einn. Að vísu ríð ég honum sjaldan án þess að teyma einn eða tvo lausa hesta. Það hefir heldur engin veruleg áhrif á viljann, þó er hann nokkru kappsfyllri á skeiðspretti, ef hestur eða hestar hlaupa samsíða honum. Þó að Gustur sé viðkvæmur gagnvart valdboði og geti orðið ofsafenginn, eru hrekkir honum alls fjarri skapi og þá kann hann enga, en jafnvel þó hann vilji vera þægur og góður hefir hann til að vera dálítið stríðinn, ef hugur hans beinist að öðru en því, sem maðurinn beitir við hann. Hann er röltstyggur, langi hann ekki í brauð, hafnar hann því heldur en að láta taka sig, en sé brauðþörfin mikil, er hann spakur og einlægur.
Í rétt verður hann ljónstyggur, ef hart er farið að honum. Aldrei má hrifsa í hann, höndina verður að leggja á kroppinn og tala við hann eða rétta móti honum höfuðleðrið á beizlinu hans. Teygir hann þá fram höfuðið og fikrar því milli ólanna. Gusti þykir gaman að láta tygja sig, og oftast nær er hann kátur í reið. Erfitt á hann með að standa kyrr meðan stigið er á bak honum og bregzt illa við flasi og þess konar háttum. Hann vill hafa ráðrúm til að stinga höfðinu í handarkrikann, meðtaka vinarhót, samtal og höfuðstrokur.
Þessi ókyrrð stafar af einlægum og ákveðnum hug hans á því að komast af stað, en jafnframt er það krafa hans, að húsbóndinn sýni honum bæði leikni í öllum tökum og háttvísi góðs hestamanns.
Ég reið Gusti aldrei belgingsreið, aðeins létt töltspor, enda sýnir hesturinn, að hann er ekki ofreyndur. Fæturnir eru hreinir og þrotalausir með öllu.
Gustur er mesti göngugarpur og ófús að láta reka sig í hús fyrsta sinni að vetri. Holdin eru alltaf svipuð, hvenær ársins sem er, – og aldrei er arða í húðinni. Það væri engin harðýgi að láta hann bjarga sér úti að vetrinum í sæmilegri tíð og góðum högum. Það gæti hann án þess að láta holdin, enda hefir hann verið mikið úti á veturna síðari árin. Ég er viss um, að holdahestum með vel gerða húð er útivistin miklu hollari en eldi á básum.
Ég flýti mér ekki að taka hesta mína í hús meðan höfuðið er slétt og frítt. Hestum er fyrir beztu, að innstöðutíminn sé sem stytztur. Eftir að búið er að taka hesta á eldisfóður ber að nota þá oft og vel að sið og fyrirmynd góðra hestamanna, hafa þá síðan í sæmilegum en snöggum högum á sumrin, unz hvíldartíminn hefst á ný sem fyrst að áliðnu sumri.
Aðeins einu sinni hef ég reynt óhóflega mikið á Gust á annan hátt en á skeiðsprettum, en það skal ég játa, að sumir skeiðsprettir hans hafa verið áreynslusamir. Sú freisting hefir gripið mig að njóta skeiðsins til fulls á brautum, sem Gusti féllu vel, en það voru moldargötur og það þó þær blautar væru. Þá krafðist hann sjálfræðis og máttu þá vaskir hestar, lausir, við hlið hans, hafa sig alla við að fylgja, en miðlungshestar stóðu eftir í götunni. Þessir skeiðsprettir voru dásamlegir. Honum fataðist aldrei og að hann hlypi upp var óþekkt fyrirbæri með öllu. Þetta vildi hann sjálfur. Kraftar voru magnaðir, mýkt, fimi og leikni með fágætum. Aldrei blés hann, tók strax jörð, þegar stigið var af baki. Gætti ég þess jafnframt, að endurtaka aldrei svona spretti í sömu ferðinni, enda byrðin þung. Ég reið Gusti aldrei belgingsreið, aðeins létt töltspor, enda sýnir hesturinn, að hann er ekki ofreyndur. Fæturnir eru hreinir og þrotalausir með öllu.
… vindur Gustur sig að honum og bítur hann af hinni mestu fólsku. Gustur skildi, að það var ungi hesturinn, sem olli því, að hann fékk ekki að ráða ferðinni og njóta sín.
Þessi mikla þolraun, sem ég ætla að lýsa, var þannig, að hryssa hvarf frá folaldi sínu. Allar líkur bentu til þess, að hún hefði farið vestur á Lyngdalsheiði, en þar eru vegleysur. Ég lagði af stað kl. um 9 f.h. á Gusti og hafði einnig til reiðar stóran fallegan fola, sem mátti heita fulltaminn, en þurfti brúkun, og nú fékkst gott tækifæri.
Að heiman og vestur að heiðinni, þar sem ég fór, er 11/2 st. reið. Upp á heiðina að austan er þreytandi brekka og þúfnakarginn á Lyngdalsheiði sá allra versti, sem menn þekkja. Þau munnmæli liggja á, að þessar löngu háu þúfur beri alltaf þversum að, hvert sem stefnt er! Þessi ummæli eru að vísu höfð eftir áttavilltum manni, en mér er sama, ég samþykki þau fullkomlega. Folinn þreyttist strax eftir fyrsta spottann, sem ég reið honum og varð mér til mikilla tafa og Gusti til skapraunar. Þetta var um miðjan ágúst, og ég leitaði án árangurs fram í rökkur. Hryssan skilaði sér eigi að síður sjálf.
Þegar ég kom á götu á heimleið með latan folann, var Gustur svo kátur og ólmur, allt að því ódæll, að mig sárlangaði að sleppa folanum. Þegar ég eitt sinn var að bisa við að ná honum við hlið mér, vindur Gustur sig að honum og bítur hann af hinni mestu fólsku. Gustur skildi, að það var ungi hesturinn, sem olli því, að hann fékk ekki að ráða ferðinni og njóta sín.
… og þakkaðu honum fyrir skeiðspretti Gusts á Þingvöllum. Það var fágæt sjón. Hesturinn hans er einstakur skeiðgammur og minnir á þessa gömlu góðu afburða hesta fyrri tíma …
Ég kom heim um miðnætti eftir 15 st. reið, að mestu einhesta, á þeim lúalegasta vegi, sem hægt er að hugsa sér. Í þetta skipti reyndi ég meira á Gust en góðu hófi gegndi, en óviljandi. Þó var ekki um þreytumerki að ræða. Þegar ég kom heimundir bæ, lá leiðin um götu, sem stundum var æft á. Vildi Gustur þá ólmur þjóta, því þá vorum við orðnir einir. Ég aftók slíkt glens með öllu eftir svo erfiðan dag.
Þó Gustur sýndi engin afrek á skeiðvelli, meðan hann var í blóma lífsins, mætti margt segja um afrek hans fleira en að framan er nefnt. Vil ég því bæta nokkru við, mun ég þó hvergi nærri lýsa list hans svo sem vert væri. Það, sem ég segi er sæmilega rökstutt.
Áerið 1950 var landsmót hestamannafélaga á Þingvöllum. Ég var þar með Gust, þá 8 v. Ekki lét ég skrá hann til keppni. Ég sá Steinþór eiga við hann árið áður og ekki leizt mér á þá viðureign. Fyrir áeggjan og óskir nokkurra manna hleypti ég honum tvo spretti.
Ásgeir Jónsson frá Hjarðarholti var einn þeirra, sem horfðu á. Hann skrifaði síðar Helga Hallgrímssyni, en hann sendi mér bréfið og á ég það enn og get því tekið úr því orðrétt þetta: „Skilaðu kveðju til Bjarna og þakkaðu honum fyrir skeiðspretti Gusts á Þingvöllum. Það var fágæt sjón. Hesturinn hans er einstakur skeiðgammur og minnir á þessa gömlu góðu afburða hesta fyrri tíma. Gusti hefði átt að veita verðlaun, sem skrauthesti í „skrautreið.“ Helgi Hallgrímsson bætti svo við í bréfi til mín þessu: „Þú veizt, að ég er mjög hrifinn af Gusti, bæði tignum svip hans og kostum, að mér þótti meir en gaman að bréfi Ágeirs, enda tel ég álit hans um þessi efni hæstaréttardóm. Þú hlýtur að muna, að ég sagði þér á Þingvöllum, að þar hefði ég engan hest sé jafnsvipfagran og göfugan eins og Gust, nema ef vera kynni Boga-Stjarna.“
Á landsmótinu 1958 var Gustur reyndur, en hann vildi enga list sýna. Hann var að vísu langfyrstur og keppnislaus fyrri daginn á 26,2 sek., en síðari daginn hljóp hann allan völlinn. Þessa mótsdaga var hann mjög óánægður, gleðivana og óþekkjanlegur, enda var árangur allur þar eftir.
Skeiðspretturinn var nokkuð langur og Fjöður hljóp samsíða. Ekki varð ég Skúla var á Reyk, var þó umtalað, að hann hleypti á eftir mér ..
Vorið eftir fór ég á mótið í Faxaborg. Við, sem saman vorum, höfðum marga hesta, meðal þeirra var Gustur. Ég lét hann að mestu ganga lausan vestur, kom þó aðeins á bak honum. Daginn sem mótið var, hvíldi Gustur sig á bökkum Hvítár. Nokkrir menn, sem séð höfðu til Gusts á Þingvöllum 1958 höfðu kalsað það við mig, hvort ég vildi nú ekki sýna þeim einn skeiðsprett, áður en lagt yrði af stað heimleiðis. Engu lofaði ég um það, en sagðist fyrst þurfa að vita, hvernig lægi á hesti mínum. Ef hann reyndist kátur, myndi ég koma. Ég lagði því á Gust, reið norður bakkann og teymdi Fjöður Þorkels sonar míns, asaviljuga hryssu og léttvígan gæðing. Ég fann starx að Gustur sótti á og var farinn að hlakka til, ef ég skyldi gefa honum lausa taumana.
Meðal þeirra, sem fylgdu mér var Skúli í Svignaskarði. Hann var á Reyk sínum, sem þennan dag hlaut fyrstu verðlaun í 300 m. sprettinum. Hann hljóp á 22,2 sek., sem var mettími. Skúli reið aðeins á eftir mér. Gust var nú farið að gruna að skemmtan væri í vændum. Þegar kom á girnilegt sprettfæri, hæfilega mjúkt og slétt, aðvaraði ég Gust á okkar vísu, og hann var viðbúinn.
Skeiðspretturinn var nokkuð langur og Fjöður hljóp samsíða. Ekki varð ég Skúla var á Reyk, var þó umtalað, að hann hleypti á eftir mér og það gerði hann. Nú segir Skúli sjálfur frá þessum leik, eigið handrit hans fylgir hér með:
Skúli hefur orðið:
… fljúga á skeiði á undan methlaupahesti á stökki. Aldrei hef ég séð slíkan skeiðsprett, hann var glæsilegur og einstæður nú á tímum.
„Framanritað er allt sannleikanum samkvæmt. Ég sá, hvað leið fyrir framan mig og hleypti samstundis Bjarna og dró sízt saman með okkur og hlupu hestar mínir þó afburða vel á mjúkri, þéttri grundinni. Gust þekkti ég vel og skeiðafrek hans, en ég hef aldrei svo áþreifanlega eins og í þetta skipti, séð hann fljúga á skeiði á undan methlaupahesti á stökki. Aldrei hef ég séð slíkan skeiðsprett, hann var glæsilegur og einstæður nú á tímum.
Ekki er ég einn til frásagnar um þetta. Þekktir hestamenn voru sjónarvottar. Ég nefni sem dæmi Jón Einarsson í Garðsauka og Jón Guðmundsson á Reykjum. Svo ber einnig á það að líta, að á Gusti sat yfir 100 kg maður.
Gustur er sá hestur, sem ég er stoltastur af að hafa komið á bak. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera knapi á Gusti á skeiðvelli, enda eftirminnilegt.“
Ég vildi því ekki angra hann á skeiðvelli, líka með tilliti til þess, að góðs árangurs var vart að vænta. Kostina var honum aðeins ljúft að veita með eðlilegum hætti i venjulegri reið
Í septembermánuði þetta sama sumar hélt hestamannafélagið „Trausti“ mót á Laugarvatnsvöllum. Þar voru hestar reyndir í þrem flokkum: alhliða gæðingar, klárhestar með tölti og hreinir brokkarar. Dómnefnd skipuðu: Guðm. Ól. Ólafsson, Jón Bjarnason, Selfossi, þá form. Hestamannafélagsins „Sleipnir“ og Kristinn Jónsson, ráðunautur. Þar var Gustur valinn sem bezti alhliða gæðingurinn.
Dómsorð: „Fjölhæfur yfirferðar góðhestur með sérlega ljúfan og þjálan vilja.“
Verðlaun voru bikar áletraður.
Á útmánuðum 1962 var Gustur í húsi, en ekki járnaði ég hann fyrr en um vorið. Mér fannst hann þá venju fremur kátur og viljugur, svo aldraður hestur. Þannig var hann allt vorið.
Venjulega teymdi ég hann eða rak og kom við og við á bak honum, en reið honum gætilega og hleypti honum aldrei. Vegna þess hve kátur hann var og léttvígur, ákvað ég að reyna hann í Skógarhólum á væntanlegu landsmóti.
Fyrri daginn vantaði hann algerlega áhugann, en síðari daginn rann hann skeiðið á 24,0 sek. í hófskeggsforaði, þá tvítugur og Hrollur á efir á 24,6 sek. Áður en hleypt var í úrslitasprettinn á skeiði um kvöldið, hafði farið fram 500 manna hópreið eftir vellinum og naglaboðhlaup, og allan daginn var rigning. Þó að ekki sjái á fótum Gusts, er mýkt brautarinnar honum þó fyrir öllu. Þó að vaði í, skiptir það hann engu máli, kraftar eru nógir og teygjan og mýktin mikil. Tveir hestar náðu sama og bezta tímanum. Logi í Varmadal fyrri dag mótsins og Gustur síðari daginn. Dómnefnd latti okkur að leggja hestana í úrslitasprett, hún taldi völlinn vart bjóðandi hestum til frekari spretta. Við Jón, eigandi Loga, kærðum okkur heldur ekki um það. Gustur og Hrollur höfðu unnið mikil afrek á svo þungfærum velli.
Við eigendur Loga og Gusts, skiptum milli okkar I. og II. verðlaunum, kr. 7.500 + 4.000, og komu þá kr. 5.750 í hlut hvors okkar.
Gustur er nú orðinn rólegur á marki, enda aldinn hestur. Meðan skap hans og fjör var í blóma, andæfði hann með fyllstu hörku allri kyrrstöðu. Þetta sýndi hann sjö vetra. Ég vildi því ekki angra hann á skeiðvelli, líka með tilliti til þess, að góðs árangurs var vart að vænta. Kostina var honum aðeins ljúft að veita með eðlilegum hætti i venjulegri reið.
Ég sá að Gustur stóð í fótinn og hvíldi hann minna og minna eftir því sem tíminn leið. Einn góðan veðurdag teymdi ég hann út, og viti menn, hann var óhaltur með öllu. Þetta var mikil gleðistund
Haustið 1954 heltist Gustur á afturfæti. Eru nú dagar hans taldir, hugsaði ég? Ástæðu vissi ég enga og ekkert sá á fætinum. Sjúklinginn hafði ég í túninu kring um húsið mitt. Nokkur tími leið, en heltin breyttist hvorki til hins betra né verra. Jón Pálsson, dýralæknir, hafði ætíð reynzt mér vel, og nú bar svo vel í veiði, að hann átti sinn sterka þátt í því að velja Gust handa mér í afmælisgjöf. Ég símaði þessvegna til hans og bað hann ásjár í vandræðum þeim, sem borið hafði að. Ég sagði honum eins og var, að ég treysti engum betur en honum til góðra verka í þessu efni. Jón kom til mín og athugaði hinn veika fót. Hann sagði fátt, en var íbygginn á svipinn, en beitti engum gamanyrðum, sem honum er þó all títt og lagið, svo sem kunnugir vita.
Nokkru síðar bar að garði tvo dánumenn og góða gesti, þá Jón Pálsson, dýralækni, og Pál Pálsson, yfirdýralækni. Jón hafði þá rætt við starfsbróður sinn um veikindi Gusts og hvað gera skyldi og ekki létu læknarnir sitja við orðin tóm, heldur komu, gerðu læknisverkin, og bönnuðu mér að vera viðstaddur. Án efa hafa þeir svæft hestinn meðan á læknisverkinu stóð. Þau ráð fylgdu, að hesturinn skyldi vera úti sem lengst fram eftir hausti, hreyfing væri honum nauðsynleg. Seint í janúar tók ég Gust inn á bás. Var heltin þá heldur minnkandi. Ég vissi að bakstrar hlutu að gera gott og styðja læknisverkin. Vafði ég hækilinn með ullardúk og vaxdúk þar utan yfir. Síðan keypti ég nokkrar flöskur af suðuvínanda, sem svo var hellt niður með fætinum innan dúkanna. Vafningurinn var ekki hreyfður í tvo mánuði eða vel það. Ég sá að Gustur stóð í fótinn og hvíldi hann minna og minna eftir því sem tíminn leið. Einn góðan veðurdag teymdi ég hann út, og viti menn, hann var óhaltur með öllu. Þetta var mikil gleðistund.
Fyrst á eftir notaði ég Gust gætilega, en brátt sá ég, að ekki var ástæða til að hlífa honum, enda reyndist það svo. Afrek þau, sem að framan er lýst, gerðust flest, eftir að hann heltist. Aldrei hefi ég getað þakkað læknunum fyrir þeirra snilldarverk og ekkert fékk ég að borga fyrir alla fyrirhöfnina. – Allir hestunnendur skilja þá kvöl, sem varanleg helti góðhests veldur eiganda hans. Jafnframt er þeim augljós gleðin, ef lækning tekst. Ég þekki nú þetta hvort tveggja.
Einu sinni komst hann alla leið að Hæli. Þá hefir hann sennilega brotizt bæði yfir Brúará og Hvítá, en vegna sandbleytu er þetta hin mesta hættuför. Ég hafði því fyllstu ástæðu til að vaka yfir honum og vera uggandi um hann
Allt frá því ég eignaðist Gust, var í mér nokkur uggur um að ég missti hann. Heimþrá hans til æskustöðvanna var alltaf sterk. Einatt hvarf hann bæði vor og haust, en vegna þess hve ég fylgdist vel með honum,náði ég honum fljótt, þó stundum ekki fyrr en við Brúará hjá Reykjanesi. Einu sinni komst hann alla leið að Hæli. Þá hefir hann sennilega brotizt bæði yfir Brúará og Hvítá, en vegna sandbleytu er þetta hin mesta hættuför. Ég hafði því fyllstu ástæðu til að vaka yfir honum og vera uggandi um hann.
Gustur fékk að vera nokkurn tíma heima á æskustöðvunum og þar með hætti hann stroki. Nú er hann orðinn svo stilltur, að börn geta riðið honum og hann ætti að geta lifað enn nokkur ár og þá einkum sem barnahestur. Nóg er til af ungum knöpum í sambúð við mig. Fram á síðustu ár gat ég haft hestana mína í túninu kringum húsið mitt, unz ég tók þá á gjöf. Þá komu þeir alltaf um sama leyti dags að garðshliðinu mínu að fá sér brauð. En síðan gamla túnið, við aðalbygginguna, var friðað fyrir skepnum, sé ég aldrei hestana mína nema með ærinni fyrirhöfn. Þetta urðu mér mikil vonbrigði. Meðfylgjandi mynd er af Gusti við hliðið. Þarna stóð hann á hverjum morgni fyrir klukkan 8, meðan hann var úti. Hann vissi, að um það leyti var mín von með brauð. Þegar ég kveikti ljós og leit út í gluggann, ókyrrðist hann, reisti makkann og kumraði. Eitt sinn kom til mín skólapiltur, áður en ég gekk heim í skólann. Þegar við gengum út, hélt ég á málmdiski með brauði á og gaf það Gusti. Daginn eftir rétti þessi skólapiltur mér bréfsnepil, og var þessi vísa á hann rituð:
Stend ég hérna stoltur frár,
stari á syfjað hyski,
en bráðum kemur Bjarni knár
með brauð á silfurdiski.
Eitt sinn ræddi ég við bónda, ágætan hagyrðing, um Gust og aðra góðhesta og lýsti því, hvernig gæðingarnir kenndu mönnum reiðmennsku.
Þá kvað bóndi í orðastað eiganda Gusts:
Stundir, daga, öld og ár
okkar kóngur mesti
ertu Gustur kosta-klár,
kennarinn minn bezti.
… varð það að ráði, að sonarsonur minn og nafni, tíu ára að aldri, mætti að lokum æfa sig á Gusti á skeiðvelli í keppni. Þetta varð svo, að undangengnu samkomulagi 27. júní sl. í Skógarhólum …
Ég gat um það í upphafi þessarar greinar um Gust, að mér hefði verið færður hann að gjöf á sextugsafmæli mínu.
Þann dag komu fyrstir til mín Steinþór Gunnlaugsson, lögfræðingur, og Helgi Hallgrímsson, fulltrúi. Báðir eru þeir þekktir hestamenn. Eitthvað voru þeir að pukrast með og vildu vera einir. Þá barst mér sú frétt að Gísli Bjarnason á Selfossi, gamall nemandi minn, væri á leiðinni að Laugarvatni ríðandi með tvo til reiðar. Mér þótti þetta myndarlegt af Gísla að koma ríðandi í afmælið mitt.
Gestum fjölgaði og meðal þeirra var Gísli, þá kominn heim í stofu. Einhver heimamanna hafði orð á því, að úti í garðinum væri hestur, altygjaður. Þá stundina var nokkuð erilsamt, og gaf ég þessu lítinn gaum, en þegar ég síðar gægðist út um glugga og sá hestinn, þekkti ég hann strax á svip hans og hinu fagra faxi og tagli. Mig grunaði hvað í vændum væri, og um mig lék sterk gleði- og þægindakennd. Á einn stofuvegginn minn var komið málverk og samtímis voru mér afhent skjöl með fjölda mannanafna, nemenda minna og annarra góðvina, og mér tjáð, að þetta væru nöfn þeirra, er gæfu mér í afmælisgjöf Gust, altygjaðan og málverk eftir Kjarval, sem hefði verið mér fyrirhugað, þegar meistarinn málaði það. Tvennt braust nú um samstundis í huga mínum. Mér fannst ég ekki eiga þetta meðlæti skilið, en hins vegar þurfti ég ekki að efast um einlægni og vináttu gesta minna og gefenda.
Venjuleg ytri þakklætisttákn urðu því að nægja, handtök, faðmlög, kossar og kaffisopi.
Fyrir atbeina Gusts og málverks Kjarvals hefi ég notið mikilla og göfgandi unaðssemda í sextán ár. Í vitund minni er varðveitt minningin og í minningunni er geymt hið varnalega þakklæti, og á það er, ef satt skal segja, hugur minn miklu næmari nú en hann var í fyrstu.
Gustur var hesturinn, sem ég þráði að eignast. Kostir hans hafa reynzt mér meiri en björtustu vonir að óreyndu.
Vinir kærir! „Signi yfir ykkur sólin góð.“
Eftir að ég lauk við framanritað, varð það að ráði, að sonarsonur minn og nafni, tíu ára að aldri, mætti að lokum æfa sig á Gusti á skeiðvelli í keppni. Þetta varð svo, að undangengnu samkomulagi 27. júní sl. í Skógarhólum. Svo sem von var, reyndizt ekki nógu auðvelt að leggja Gust til skeiðsins, en allt varð þó lögulegt hjá unga knapanum og áhorfendur sáu þennan stórlynda hest þylja völlinn á hreinum kostum í höndum tíu ára barns.
Með þessum skeiðspretti er brotið blað í skeiðreið á skeiðvelli og munu fleiri ungir drengir á eftir koma. Sennilega verður þetta síðasti sprettur Gusts á almannafæri.
Að lokum þakka ég ritstjórninni fyrir að birta svo langa grein sem þessi varð.
Hesturinn okkar, 1. tbl. 1965, bls. 10-13 og 2. tbl. 1965, bls. 42-43, 50.