Hestavísur úr kistu Bjarna Bjarnasonar

Um Gust

Stend ég hérna stoltur klár
og stari á syfjað hyski,
en bráðum kemur Bjarni knár
með brauð á silfurdiski.

Ónafngreindur nemandi Bj.Bj.

o – o – o – o

Dagar, stundir, öld og ár
okkar kóngur mesti
ertu Gustur, kosta klár
kennarinn minn besti.

Ónafngreindur góðbóndi í orðastað eigandans

o – o – o – o

Áfram þusti fáka fans.
Foldin gnast við hófa dans.
Fremstur Gustur fór með glans.
Flestum gazt að kostum hans.
                               Fr.G.

Um Ósa

Þrumuljósa ferð með fer
fákurinn Ósi nýtur
í veðreið hrós af höldum ber
hæst má verðlaun kjósa sér
                    Jón í Skeiðháholti

o – o – o – o

Yfir leiti braut og brýr
burðar neyti hraður,
sköflum beitir, skjálftinn flýr,
skeiðið þreytir Bógatýr

Óvíst um höf.

 

Um Skjóna

Yfir sléttur, engjar,  tún
urðir, brekkur, heiðar,
tekur rétt öll tilþrif hún
töltir, stekkur, skeiðar.
               Jón Einarsson, Miðhúsum, Mýrars.

o – o – o – o

Lyftist hátt af innri yl
ólmur Bjarna Skjóni.
Gæðingurinn grípur til
svo gneistar loga á fróni.

Hlusta ég á þitt hófamál
hesturinn besti á fróni.
Gangur þinn og göfug sál
gáfu mér lífdrykk, Skjóni.
               Þórður Kristleifsson

o – o – o – o

Skjóni Bjarna á Laugarvatni

Tifar, skundar, tilþrif snör,
tíða undra-sporið, –
brunar grundu, flýtir för
frjáls í lund sem vorið.

Yfir hæðir holt og mó
hljóp án mæði´af snilli,
undra-gæðin, aflið nóg
eg í ræðu hylli.

Höfuð reisti´ í tauma tók,
tindrar neisti´ í spori,
fram hann geystist, flugið jók,
ferð með hreysti´og þori.

Fagri góði fákur minn,
fell og slóðir duna,
lifnar blóð við leikinn þinn,
lyfting, móð og funa.

Taktfast ómar töltið hátt,
títt og hljómar lengi.
Hesta ljóminn dansar dátt,
dynur blóma-engi.
                    Laugarvatni, 7. sept. 1961.

Þórður Kristleifsson.

 

Þessa vísu orti Þórður líka eftir að Védís hafði lánað honum Létti nokkurn:

 

Fákinn góða þakka þér,
það var dagsins gaman
að finna hve hann frækinn er
og fætur dansa saman.

 

o – o – o – o

 

Hingað mjó var gatan gjörð
ég geng hana aldrei kvíðandi.
Hollt er að kynnast himi og jörð
og horfa á Bjarna ríðandi.

Óvíst um höf.

o –  o – o – o

Allar stundir finnur,  frár
fór sem ör á hjarni.
Nú er Fífill keppinn, knár
kominn til þín, Bjarni.

Óvíst um höf.

o – o – o – o

Vekur  styrr og veitir frið
vonir rætast mínar
gegnum taum að tala við
tilfinningar þínar.

Guðmundur á Skálpastöðum

 

Eintóm snilld  á alla lund,
enn hvað það er gaman.
Ó, að við mættum yndisstund
eiga margar saman.

Guðmundur á Skálpastöðum

 

Vel jeg finn, mjer væri það
veiga mestur auður
ef þú gætir gert mig að
góðum manni, Rauður.

               Guðmundur á Skálpastöðum

 

Enginn mundi orka því
afrendur þó væri
að ganga til og grípa í
glatað tækifæri.

Óvíst um höf.

 

Grái Faxi gæfur er
góðlátur og hollur,
um mig ótti falinn fer
ferlegur er sá hrollur.  

(BB?)

o – o – o – o

Þá Stígandi, sá stælti jór,
stikar beint að Garði
ráðríkur og risi stór
réðst á mig og barði.

(BB?)

o  – o –  o – o

Hjá Lappa og Gráfeld leið mér best
og líka af því stafar,
að ég þarf bæði hund og hest
hinum megin grafar.
                     Kristinn Árnason,  Finnsst.

Kappreiðar. Sléttubönd.

Aldir fákar leiftur leik
lífga vanginn hýra.
Valdir strákar, kona keik,
kviku fangi stýra.

Blikar auga, funa flóð
fáksins snilli rómar.
Kvika taugar, brimar blóð.
Bærast hylli ómar.

Stilltir knapar ramma reið
reistum gandi beita.
Trylltir gapar skjótast skeið
skriðhratt, sandi þeyta.

Svellur móður, blakkar braut
bruna, spretti ljúka.
Vellur blóðið, hrósið hlaut
hryssan Gletta mjúka.

Kenna allir gamla Gný, –
goðanna stáli búinn, –
renna vallar ólgu í
ofsa-báli knúinn.

Fýkur skjótur Gulur, greitt
grípur roku stranga.
rýkur fljótur, þrekki þeytt,
þyrlast stroku langa.
                   Laugarvatni, 14. júní 1962.

Þórður Kristleifsson

 

Hófa-blökin, gripin greið
gleði fagnað eykur.
Lófa-tökin, samspils-seið
sveinninn magnar keikur.

 

Stækkar heiminn gæðings glóð
glæðir hreiminn funa.
Hækkar geiminn fjörsins flóð
fangar dreyminn muna.
                    Laugarvatni, vorið 1952.

Þórður Kristleifsson

o – o – o – o

Skuggaþáttur (brot)

  1. Segðu mér Skuggi
    sögu þína.
    Hví hljópstu á brott
    úr heimalandi?
    Hefur ei til vegs
    hafið þið Bjarni,
    kennt þér íþróttir,
    kempt þig og aldið?

  2. Engu hef ég þar
    undan að kvarta,
    en óskir á ég
    ennþá fleiri.
    Brimar mér í blóði
    brennandi þrá
    átthaga horfna
    aftur að líta.

  3. Man ég kæra móður,
    hve mjög hún unni
    syni sjúgandi
    og sæludrukknum,
    þá var ég alsæll
    ólátabelgur
    og elskaði lífið
    úr öllum máta.

  4. Fjörugt var samlíf
    farið í leiki
    og allskyns ærsl
    endurtekin,
    á bala var svo hvílt
    í breiskju sólar,
    flatskrokkað, sofið
    við sælu drauma.

  5. Eystra sakna‘ ég margs,
    sem átthagar
    veittu mér til yndis
    og unaðssemda.
    Heima var ei fluga
    húð mína‘ að narta,
    gamna sér það svín
    nú að gremju minni.

  6. Aldrei fæ ég framar
    folöld að líta.
    Elska ég þau
    og að þeim dáist,
    fegurð þeirra
    og feikna gáski
    fönguðu hug minn
    og fegruðu lífið.

  7. Þótti ég í æsku
    þekkur miður
    stökk ég með stráka
    og stefnu réði.
    Vildi‘ ég sýna þeim
    svart á hvítu
    að leiksoppur var ég ei
    lyddu-menna.

  8. Væksla set ég lágt
    og veimiltítur,
    virði þær lítt
    og lýt þeim ekki,
    en karlmennsku met
    og krafta í taugum
    og breiðar herðar
    sem bera‘ yfir g??ann.

  9. Mörg hafa mein
    og mótgangur
    amað að líkum
    á æskuvegum.
    Gleymt er slíkt, en geymd
    glóbjört mynd
    minninga öllu
    yndislegri

  10. Undarlega sterk
    er sú innri-rödd,
    er hástöfum ómar
    frá heimaranni.
    Hyllt mig hefur
    sá hljómurinn sæti
    og sólin borgfirzka
    sál mín fangað.

  11. Borgarfjörðurinn
    blasti við sjónum
    hreifst ég úr hófi
    hvarf þá fjarskinn.
    Þvílíka þrá
    þekkir enginn,
    sem ekki‘ elur slíka
    í eigin barmi.

  12. Þaut ég sem örskot
    yfir hraunfláka,
    vegleysur válegar
    í voða sprettum,
    spann við fótum
    og sprungur yfir
    hreinfrár hentist
    og hikaði aldrei.

  13. Brúnn mér fylgdi,
    fetaði rakkur.
    Tryggir félagar
    fórna oft miklu.
    Arinbjörn þá
    var Agli mestur,
    en ógnum að skefldi
    og ofurvanda.

  14. Höfðum við að baki
    helveg mikinn,
    hjartað mitt dansaði
    höfuð lyftist,
    hélt ég að brautin
    að byggð minni
    lægi nú opin
    til auðnuheima.

  15. Úr leyni spruttu þá
    sprettharðir drengir,
    fjórir að tölu
    og flæmdu í vígi.
    Vörnin var löng
    en ljóst var þó síðast,
    að enginn má
    við margnum.

  16. Hnepptur í hreysi,
    hvílík örlög!
    Fangelsi fúlt –
    frelsi rændur!
    Harmar þungir
    og hjartasorgir!
    Titruðu taugar
    af trega og reiði.

  17. Heyrt hafði‘ ég getið
    um hauka í búri,
    vængheila, fráa,
    en þó varnaða flugsins.
    Skildi ég nú fyrst
    sköp þeirra.
    er bergði‘ ég sama
    bikar að grunni.

  18. Saga þín að sönnu
    virðist svörtu litað.
    Flesta kveður sorg
    í fylgd með sér,
    en í mótlæti skín þér
    og skugga lýsir
    leiftrandi ljós
    liðinna daga.

  19. Mörgum tekst sem þér,
    töltarinn prúði,
    að fótum fjallsins
    finna þeir leiðir.
    en brattann ei klífa,
    né blíðgeisla finna,
    sem verma löndin
    í vonarheimum.

  20. Virði ég þeirra
    viðleitni mikils,
    sem velja stefnu
    stórum hærri
    flesjum fúnum,
    fletra leiðum,
    og eiga svo óskir
    í óþekkri hæð.

  21. Eigi þú náðir
    ætluðu marki.
    Sárt þér svíður það
    sómans vegna.
    En mundu það, Skuggi,
    að mennirnir líka
    mega oft una
    alveg því sama.

  22. Brautir brosandi
    og blómum stráðar
    ætla þér sér,
    en aldrei hitta.
    Lenda svo í sjálfheldu
    í sölum skugga
    í kolsvörtu gili
    „kaldir á hjarta“.

  23. Aðhafðist þú,
    það, sem innstarödd
    bauð þér, bað þig
    í bænarrómi.
    Dæmi þig hver,
    sem dæma þorir
    til þín kasta ég
    ei kekkjum né steinum.
              Í ágústm. 1939. Þórður Kristleifsson.



 

Skildu eftir svar