Háseti í Þorlákshöfn

Fyrir skömmu birti ég hér samantekt um ætt pabba, Þorkels Bjarnasonar. Þar kom m.a. fram að afi, Bjarni Bjarnason, hefði stundað sjóróðra frá Þorlákshöfn á vetrarvertíð 1908 og 1909, þá 18 og 19 ára gamall. Í pappírum sem varðveist hafa frá honum er handskrifað uppkast, sem hann ætlaði til birtingar í Suðra III, sem kom út að honum látnum árið 1975. Ekki varð af því, uppkastið var talið „frumdrög að ritgerð sem hann hefur ætlað … sér að umrita og fullgera undir prentun“.
     Eins og flestum er væntanlega kunnugt safnaði og gaf Bjarni út Suðra, þætti úr framfarasögu Sunnlendinga frá Lómagnúp að Hellisheiði, í þremur bindum. Fyrsta bindið kom út 1969, annað 1970, árið sem hann lést, en því þriðja náði hann ekki að fylgja sjálfur eftir til prentunar.
     Ég leyfi mér að birta hér þetta uppkast afa, að mestu stafrétt, en hnika einstöku sinnum við kommusetningu og stafsetningu, og einstaka orð, sem erfitt var að lesa úr með fullri vissu merki ég með (?). Einnig setti ég inn millifyrirsagnir, til að létta á lestrinum.
     Vonandi hafa einhverjir jafn gaman af því og ég að lesa þessa fróðlegu lýsingu á verbúðalífi á Íslandi fyrir 120 árum.

Halda áfram að lesa