Jón Steingrímsson, kallaður eldklerkur, var fæddur á Þverá í Blönduhlíð 10. september 1728 og dó á Prestsbakka á Síðu 11. ágúst 1791. Hann var prestur, læknir og náttúrufræðingur og þjónaði á Prestsbakka við Kirkjubæjarklaustur á tímum Skaftárelda og síðar móðuhaðinda. Halda áfram að lesa
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: október 2026
Ættfræði: Frá Jóni Arasyni, Hólabiskupi
Alþekkt er að Jón Arason, biskup á Hólum í Hjatladal og síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn í Skálholti 7. nóvember árið 1550, ásamt sonum sínum, Birni og Ara.
Þá er það einnig þekkt að þeir feðgar voru fluttir norður að Hólum eftir aftökuna. Á leiðinni var komið við á Laugarvatni, kistur feðganna lagðar á steina, Líkasteina, við heita laug á vatnsbakkanum og líkin þvegin þar í lauginni, sem síðan heitir Vígðalaug. Er það haft fyrir satt hér að þá hafi ætt vor fyrst komið að Laugarvatni, alla vega svo í frásögur væri færandi. Halda áfram að lesa
Hestavísur úr kistu Bjarna Bjarnasonar
Um Gust