Ættfræði: Frá Jóni Arasyni, Hólabiskupi

Alþekkt er að Jón Arason, biskup á Hólum í Hjatladal og síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, var hálshöggvinn í Skálholti 7. nóvember árið 1550, ásamt sonum sínum, Birni og Ara. 

Þá er það einnig þekkt að þeir feðgar voru fluttir norður að Hólum eftir aftökuna. Á leiðinni var komið við á Laugarvatni, kistur feðganna lagðar á steina, Líkasteina, við heita laug á vatnsbakkanum og líkin þvegin þar í lauginni, sem síðan heitir Vígðalaug. Er það haft fyrir satt hér að þá hafi ætt vor fyrst komið að Laugarvatni, alla vega svo í frásögur væri færandi. Halda áfram að lesa →