Straumur

Meðan afi minn, Bjarni Bjarnason, var skólastjóri í Hafnarfirði (1915-1929), keypti hann í félagi við Þórð Edilonsson, lækni, „fjárjörð í nágrenni Hafnarfjarðar, Strauminn“ (Matthías I. 1964. „Líf og starf í 75 ár: rætt við Bjarna á Laugarvatni“. Þjóðólfur, 5. desember). Þar rak hann í 12 ár (1918-1930) stórbú, fjár- og kúabú, samhliða skólastjórninni. „Mér þótti alltaf mest varið í fallegar hámjólka kýr og ég átti 14 kýr í Straumi. Það er svolítið sérkennilegt því þar er mjög léleg grasnyt.  En til stuðnings því, að vit hafi verið í þessu starfi, vil ég segja þér frá því, að til mín kom Þorvaldur Jónsson bóndi í Hjarðarholti í Stafholtstungum. Hann er landskunnur bóndi vegna fyrirmyndar á mörgum sviðum landbúnaðar og hann sagði, að hann hefði aldrei séð 14 kýr í einu fjósi jafn glæsilegar. Margar voru þá nýbornar og allar mjólkandi. Þessu gat ég ekki gleymt“, sagði hann sjálfur um búreksturinn (Sama heimild).

Allir Íslendingar þekkja hið fallega hús í Straumi í Straumsvík, sem blasir við handan víkurinnar frá Álverinu, þegar ekin er Reykjanesbrautin. Húsið byggði afi, eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar, eftir að íbúðarhús og hlaða á jörðinni brunnu til kaldra kola árið 1926. Húsið i Straumi hefur Guðjón því teiknað um sama leyti og hann teiknaði Héraðsskólann að Laugarvatni, fegursta húsið á Íslandi. 

Hér fylgir grein Gísla Sigurðssonar um jörðina Straum úr Lesbók Mbl. árið 2000, og þar á eftir samtímafrétt úr Vísi um brunann í Straumi. Halda áfram að lesa