Hálmholtskot eða Hjálmholts-Vesturkot, sem í kirkjubókum var oftast nefnt Vesturkot og var allt sama jörðin, stóð 350 m norðvestur af bænum í Hjálmholti og var hjáleiga frá höfuðbólinu eins og nafnið segir til um, „bygð skamt frá heimatúninu fyrir manna minni,“ eins og segir í Jarðabók Árna Magnússonar frá 1709. Kvikfé bóndans það ár var þrjár kýr, tvær kvígur að fyrsta kálfi, tveir kálfar, 25 ær, 13 sauðir, 25 lömb og þrír hestar. „Kostir allir og ókostir sem á heimajörðunni.“ Halda áfram að lesa
Um Hálmholt, Hjálmholts-Vesturkot og fólk
Svara