Bjarni Bjarnason, Laugarvatni:
GUSTUR
Fljótt varð þess vart, að Gustur var óvenju ganglaginn. Skeiðhrifsurnar urðu strax tilþrifamiklar, enda var bæði hraði og teygja í spori svo mikil, að alveg óvenjulegt var um fola í fyrstu tamningu. Og þótt vekurðin lægi opin fyrir, var töltið dúnmjúkt og hreint …
Gustur minn verður 23 vetra í vor. Sextán ár hefir hann verið minn aðalreiðhestur. Enn er hann mikill gæðingur og afrekshestur, þó að ég, sem best hann þekki, finni ellimerki nokkur. Halda áfram að lesa